mið 07.des 2022
[email protected]
Lahm: Engin augljós nálgun í sóknarleiknum
 |
Kai Havertz |
Þýska landsliðið olli miklum vonbrigðum á HM í Katar en liðið féll úr leik í riðlakeppninni.
Phillip Lahm fyrrum fyrirliði landsliðsins var allt annað en sáttur með sóknarupplegg liðsins sem virtist hreinlega ekki vera neitt. „Það var engin augljós nálgun í sóknarleiknum. Þýskaland er með fjóra framherja sem eru tæknilega mjög góðir í Serge Gnabry, Jamal Musiala, Kai Havertz og Leroy Sane og svo eru einnig Thomas Muller og Niclas Fullkrug," sagði Lahm. „Fótbolti snýst um smáatriðin. Í sóknarleiknum t.d. Hvernig kemst ég í boxið án þess að gefa allt upp? Hvernig kem ég í veg fyrir að hitt liðið fari í skyndisókn ef ég tapa boltanum?" Liðið varð heimsmeistari í Brasilíu árið 2014 en hefur fallið úr leik í riðlakeppninni á síðustu tveimur mótum.
|