fim 08.des 2022
[email protected]
Einherji auglýsir eftir þjálfurum fyrir meistaraflokkana
Ungmennafélagið Einherji auglýsir eftir metnaðarfullum þjálfurum fyrir meistaraflokka karla- og kvenna hjá félaginu.
Meistaraflokkur kvenna leikur í 2. deild en karlaliðið í 3. deild eftir að hafa tryggt sér sigur í 4. deild í sumar.
Nánari upplýsingar veitir Víglundur Páll í gegnum netfangið [email protected]
|