fim 08.des 2022
Hlynur Atli framlengir við Fram
Hlynur Atli Magnússon, fyrirliði Fram, hefur framlengt samning sinn við félagið út tímabilið 2024.

Hlynur hefur leikið allan sinn feril hjá Fram að undanskildum árunum 2013-2015. Þá lék hann með Þór Akureyri og svo Florö í Noregi.

Hlynur hefur leikið 249 leiki fyrir Fram sem gerir hann þann 11. leikjahæsta í sögu Framara, hann er því aðeins 23 leikjum frá því að komast inn á lista 10 leikjahæstu leikmanna Fram frá upphafi.

„Ánægjulegt að framlengja við Hlyn, enda alltaf gleðitíðindi þegar leikmenn ná slíkum áfanga sem Hlynur hefur náð með sínu uppeldisfélagi. Hlynur er ekki bara góður og reynslumikill leikmaður heldur mikilvægur félagsmaður, góð fyrirmynd yngri kynslóðarinnar sem og liðsfélaga sinna. Vonandi sjáum við Hlyn sem lengst í bláu treyjunni." sagði Agnar Þór Hilmarsson formaður knd. Fram.

Hlynur er 32 ára varnarmaður sem byrjaði 21 leiki í Bestu deildinni í sumar, kom þrisvar sinnum inn á og var einu sinni ónotaður varnarmaður.