fös 09.des 2022
[email protected]
Arnar Gunnlaugs: Myndi slá nokkra utan undir ef ég væri að þjálfa Brasilíu
 |
Arnar var ekki hrifinn af frammistöðu Brasilíu í fyrri hálfleik. |
Seinni hálfleikur er að hefjast í viðureign Króatíu og Brasilíu í 8-liða úrslitum HM, staðan er markalaus.
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari bikarmeistara Víkings, er í HM stofunni á RÚV og segir að leikurinn hafi verið þægilegur fyrir Króatíu.
„Ótrúlega þægilegt, ef ég væri Tite (þjálfari Brasilíu) núna þá myndi ég labba á milli leikmanna og slá nokkra utan undir," segir Arnar.
„Það er eins og nokkrir leikmenn séu ekki að gera sér grein fyrir því að þeir eru staddir í 8-liða úrslitum HM og ákefðin hjá sumum leikmönnum er bara 'núll'. Þeir eru komnir í einhvern töffaraskap og fíflalæti. Á móti svona liði eins og Króatíu er voðinn vís." „Króatar hafa stjórnað leiknum með og án bolta en hafa ekki mikið ógnað. Eina ógnin hjá Brasilíu var í gegnum Vinicius, Neymar er að draga sig alltof aftarlega til að fá boltann í stöðum sem hann á ekki að fá boltann í." „Ef Brasilía tekur sig ekki saman í andlitinu gæti liðið verið á leið út úr keppninni."
|