lau 07.jan 2023
[email protected]
Býður fyrrum félögum Vialli á góðgerðarmót
 |
Gianluca Vialli |
Ítalski fótboltamaðurinn fyrrverandi lést í gær aðeins 58 ára að aldri eftir baráttu við krabbamein.
Hann lék með Cremonese, Sampdoria, Juventus og Chelsea á ferlinum ásamt því að stýra Chelsea. Marco Lanna, forseti Sampdoria, segist ætla að setja upp góðgerðarmót og kalla það 'Luca Vialli Bikarinn' þar sem öll fyrrum félög Vialli taka þátt og mun ágóði renna í eitthvað málefni. „Sampdoria hefur alltaf átt stað í hjarta hans. Hann hringdi oft í mig til að spyrja hvað væri í gangi innan félagsins. Hann átti í góðu sambandi við félagið," sagði Lanna.
|