lau 07.jan 2023
[email protected]
Tveir leikmenn komnir til Chelsea í dag (Staðfest)
Chelsea staðfesti komu Fofana fyrr í dag og hún hefur félagið staðfest önnur kaup.
Um er að ræða hinn 18 ára gamla Andrey Santos en þessi Brasilíumaður kemur til liðsins frá Vasco da Gama í heimalandinu. Fabrizio Romano segir að kaupverðið sé 12.5 milljónir evra. Hann skoraði 8 mörk í 33 leikjum fyrir brasilíska félagið á síðustu leiktíð þegar liðið tryggði sér sæti í efstu deild á því næsta. „Þetta er stórt tækifæri fyrir mig. Þetta félag spilar í stórum keppnum eins og Úrvalsdeildinni svo ég er mjög spenntur. Leikmennirnir hérna eru svo góðir og ég er ánægður með að vera kominn hingað," sagði Santos við undirskriftina.
|