fös 13.jan 2023
[email protected]
Spánn um helgina - El Clasico í Sádi-Arabíu
 |
Barcelona og Real Madrid eigast við í Sádi-Arabíu |
Átta leikir eru spilaðir í La Liga á Spáni um helgina en öll augu verða hins vegar á úrslitaleik ofurbikarsins en þar mætast Barcelona og Real Madrid í El Clasico-slag í Sádi-Arabíu.
Real Madrid vann Valencia á miðvikudag í undanúrslitum ofurbikarsins á meðan Barcelona lagði Betis í gær og mætast þessi lið því á sunnudag klukkan 19:00 í Riaydh, höfuðborg Sádi-Arabíu.
Það breytir því þó ekki að átta leikir verða spilaðir í La Liga um helgina.
Atlético Madríd heimsækir Almería á sunnudag og þá mætast Real Sociedad og Athletic Bilbao í Baskaslag á laugardag.
Hægt er að sjá alla leiki helgarinnar hér fyrir neðan.
Leikir helgarinnar: Föstudagur: 20:00 Celta - Villarreal
Laugardagur: 13:00 Valladolid - Vallecano
15:15 Girona - Sevilla
17:30 Osasuna - Mallorca
20:00 Real Sociedad - Athletic
Sunnudagur: 13:00 Getafe - Espanyol
15:15 Almeria - Atletico Madrid
Ofurbikarinn: 19:00 Real Madrid - Barcelona
|