lau 14.jan 2023
[email protected]
Atletico leiðir kapphlaupið um Memphis Depay
Atletico Madrid leiðir kapphlaupið um framherjann Memphis Depay sem rennur út á samningi hjá Barcelona næsta sumar.
Úrvalsdeildarfélög á borð við Chelsea, Arsenal, Newcastle og Manchester United hafa verið nefnd til sögunnar sem áhugasöm en Atletico virðist ætla að setja félagsskiptin í forgang hjá sér. Atletico er búið að skora 23 mörk í 16 deildarleikjum og situr í fimmta sæti deildarinnar - þrettán stigum eftir toppliði Barca. Memphis er 28 ára gamall og hefur skorað 14 mörk í 42 leikjum frá komu sinni til Barcelona fyrir einu og hálfu ári síðan. Hann hefur áður leikið fyrir PSV Eindhoven, Manchester United og Lyon auk þess að 43 mörk í 86 landsleikjum með Hollandi. Talið er að Memphis myndi frekar kjósa að vera áfram í spænska boltanum heldur en að skipta aftur yfir til Englands.
|