lau 14.jan 2023
[email protected]
„Biluð úrslit þegar maður skoðar skýrsluna“
 |
Valur tefldi fram öflugu liði gegn Fjölni en tapaði samt. |
Undirbúningstímabilið á Íslandi er farið á fulla ferð en Reykjavíkurmótið fór af stað í vikunni. Áhugaverð úrslit urðu á Origo vellinum á Hlíðarenda þar sem Valur tapaði 0-1 fyrir Lengjudeildarliði Fjölnis.
Rætt er um þessi óvæntu úrslit í útvarpsþættinum Fótbolti.net en Valsmenn tefldu fram afskaplega sterku liði á pappírnum með flesta af sínum lykilmönnum.
„Maður myndi nú halda að í fyrsti mótsleik undir stjórn nýs þjálfara og með þetta firnasterka byrjunarlið sem var þarna inná, að það kæmu einhverjir ferskir vindar í fyrsta leik," segir Elvar Geir Magnússon.
„Þetta eru biluð úrslit þegar maður skoðar skýrsluna." „Fjölnismenn voru að gera einhverjar fimm til sex skiptingar á meðan Valur heldur sínu sterkasta liði inná en tapar samt," segir Tómas Þór Þórðarson og Elvar bætir við:
„Það lyktar af því að það sé ærið verkefni að koma liðinu út úr því fari sem liðið var í á síðasta tímabili." „Það vantar Frederik Schram og Patrick Pedersen, annars er þetta bara þeirra sterkasta," segir Sæbjrn Steinke.
Hér má sjá skýrslu leiksins en byrjunarlið Vals var þannig skipað: Sveinn Sigurður Jóhannesson (m); Birkir Már Sævarsson, Elfar Freyr Helgason, Hólmar Örn Eyjólfsson, Sigurður Egill Lárusson; Haukur Páll Sigurðsson, Birkir Heimisson, Kristinn Freyr Sigurðsson; Guðmundur Andri Tryggvason, Tryggvi Hrafn Haraldsson, Aron Jóhannsson.
Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar í útvarpsþættinum Fótbolti.net sem verður á X977 milli 12 og 14 í dag
|