lau 21.jan 2023
[email protected]
Króatískur landsliðsmaður á leið til Union
 |
Josip Juranovic í leik með Króatíu á HM |
Króatíski landsliðsmaðurinn Josip Juranovic er á leið til Union Berlín í Þýskalandi en það er Sky Sports sem greinir frá.
Juranovic var frábær í hægri bakverðinum hjá Króatíu á HM í Katar og kjölfarið fóru fjölmörg lið að spyrjast fyrir um hann.
Leikmaðurinn er á mála hjá Celtic í Skotlandi en þó aðeins í nokkra daga til viðbótar því hann er á leið til Union Berlín í Þýskalandi.
Union hefur komist að samkomulagi við Celtic um kaupverð á Juranovic en hann mun kosta 7,5 milljónir punda.
Juranovic er á leið til Þýskalands þar sem hann mun gangast undir læknisskoðun áður en hann skrifar undir langtímasamning.
Union er í 5. sæti þýsku deildarinnar með 27 stig.
|