lau 21.jan 2023
[email protected]
Byrjunarlið Liverpool og Chelsea: Bajcetic byrjar - Trent, Nunez og Mudryk á bekknum
 |
Stefan Bajcetic. |
 |
Mudryk er á varamannabekknum í dag. |
Mynd: Getty Images
|
Það er stórleikur á dagskrá klukkan 12:30 í ensku úrvalsdeildinni en þá mætast Liverpool og Chelsea á Anfield.
Liðin hafa bæði ollið miklum vonbrigðum það sem af er vetri en þau sitja í níunda og tíunda sæti deildarinnar með 28 stig. Liverpool hefur þó spilað einum leik færra heldur en gestirnir.
Heimamenn fengu stóran skell gegn Brighton í síðasta deildarleik sínum en liðinu tókst hins vegar að vinna Wolves á útivelli í enska bikarnum í miðri viku.
Chelsea vann langþráðan sigur í deildinni um síðustu helgi þegar það lagði lið Crystal Palace að velli með einu marki gegn engu.
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, stýrir sínum þúsundasta leik á ferlinum í dag. Hann gerir þrjár breytingar á byrjunarliði sínu.
Serbneski Spánverjinn Stefan Bajcetic er áfram í byrjunarliðinu en Alisson Becker, Andy Robertson og Mohamed Salah koma inn í liðið frá bikarleiknum gegn Wolves.
Darwin Nunez er á bekknum en hann hefur átt við meiðsli að stríða. James Milner byrjar í bakverðinum en Trent Alexander-Arnold sest á bekkinn. Graham Potter, stjóri Chelsea, gerir eina breytingu á byrunarliði sínu sem vann Crystal Palace.
Marc Cucurella kemur inn í liðið fyrir Carney Chukwuemeka. Þá er Mykhailo Mudryk á varamannabekknum en Mateo Kovacic er ekki í leikmannahópnum í dag. Liverpool: Alisson, Milner, Gomez, Konate, Robertson, Keita, Bajcetic, Thiago, Salah, Gakpo, Elliott. (Varamenn: Kelleher, Fabinho, Henderson, Oxlade-Chamberlain, Jones, Tsimikas, Nunez, Matip, Alexander-Arnold.) Chelsea: Arrizabalaga, Badiashile, Jorginho, Silva, Chalobah, Mount, Ziyech, Gallagher, Havertz, Cucurella, Hall. (Varamenn: Bettinelli, Aubameyang, Loftus-Cheek, Mudryk, Koulibaly, Fofana, Azpilicueta, Chukwuemeka, Humphreys.)
|