fös 27.jan 2023
[email protected]
Hengdu Vinicius niður af brú: Madríd hatar Real
 |
 |
Mynd: Getty Images
|
Real Madrid sló Atletico Madrid úr leik í 8-liða úrslitum spænska Konungsbikarsins í gær og gerði Vinicius Junior síðasta mark leiksins í uppbótartíma framlengingarinnar.
Lokatölur urðu 3-1 fyrir Real Madrid eftir framlengda viðureign og fagnaði Vinicius markinu sínu með hefðbundnum dansi. Dansarnir hans Vinicius voru mikið í umræðunni fyrr á tímabilinu en kynþáttafordómar í hans garð hafa verið þónokkrir undanfarin misseri, sérstaklega frá rasískum minnihluta stuðningsmanna Atletico Madrid. Fyrir bikarleikinn í gærkvöldi tók hópur stuðningsmanna Atletico Madrid uppá því að búa til brúðu af Vinicius og hengja hana niður af brú í höfuðborginni með stórum borða við hliðina: Madríd hatar Real eru skilaboðin á borðanum. Þetta líkneski af Vinicius var hengt að nóttu til og hafa stjórnarmenn La Liga og Atletico Madrid fordæmt hegðunina. „Þetta er ógeðsleg hegðun sem færir mikla skömm á okkar samfélag. Við fordæmum þessa hegðun með öllu. Það er mikill rígur á milli þessara félaga en það verður alltaf að ríkja gagnkvæm virðing," segir meðal annars í yfirlýsingu frá Atletico. Stjórnendur La Liga, efstu deildar spænska boltans, eru í nánu samstarfi við lögregluyfirvöld í Madríd til að komast til botns í þessu máli og mega þeir seku búast við hörðum refsiaðgerðum.
|