fös 27.jan 2023
[email protected]
Þýskaland um helgina - Erfitt fyrir Bayern og Dortmund
 |
 |
Mynd: EPA
|
Átjánda umferð þýska deildartímabilsins fer fram um helgina. Tímabilið þar í landi er hálfnað og eru margfaldir Þýskalandsmeistarar FC Bayern með þriggja stiga forystu eftir að hafa gert jafntefli í síðustu tveimur leikjum.
Helgin hefst á skemmtilegri viðureign í kvöld þar sem RB Leipzig tekur á móti fallbaráttuliði Stuttgart. Heimamenn í Leipzig sitja í þriðja sæti sem stendur, fjórum stigum eftir Bayern. Bayern á erfiðan leik á morgun, laugardag, þegar Eintracht Frankfurt kíkir í heimsókn. Frankfurt er í 4-6. sæti, aðeins fimm stigum frá Bæjörum í óvenju jafnri toppbaráttu. Helginni lýkur með tveimur sunnudagsleikjum og þar á meðal er stórleikur í Leverkusen þar sem heimamenn í Bayer taka á móti Borussia Dortmund Bæði lið hafa verið að spila undir væntingum á tímabilinu. Dortmund er í 4-6. sæti með 31 stig á meðan Leverkusen er aðeins með 24 stig eftir hörmulega byrjun. Leverkusen er þó komið á gott skrið og hefur unnið síðustu fimm deildarleiki sína í röð. Föstudagur: 19:30 RB Leipzig - Stuttgart Laugardagur: 14:30 Hoffenheim - Gladbach 14:30 Freiburg - Augsburg 14:30 Hertha - Union Berlin 14:30 Werder - Wolfsburg 14:30 Mainz - Bochum 17:30 Bayern - Eintracht Frankfurt Sunnudagur: 14:30 Schalke 04 - Köln 16:30 Leverkusen - Dortmund
|