fös 27.jan 2023
[email protected]
Stuðningsmaður biðlar til umboðsmanns Hákons - „Fyrirfram þakkir"
 |
Hákon Arnar Haraldsson. |
Landsliðsmaðurinn Hákon Arnar Haraldsson hefur verið sterklega orðaður við Salzburg í Austurríki upp á síðkastið. Hákon er nítján ára sóknarsinnaður miðjumaður sem lék sína fyrstu A-landsleiki á síðasta tímabili.
Það var fjallað um það í síðustu viku að Salzburg hefði gert stórt tilboð í Hákon, tilboð sem hljóðaði upp á 100 milljónir danskra króna. FCK hafnaði tilboðinu.
Hákon, sem er samningsbundinn FCK fram á sumarið 2026, var valinn fótboltamaður ársins hér á Íslandi í fyrra. Á því ári varð hann danskur meistari með FCK, stimplaði sig inn í A-landsliðið og skoraði í Meistaradeildinni.
Hann er greinilega í miklum metum hjá FCK og stuðningsmönnum liðsins. Það má til dæmis sjá á svari sem Magnús Agnar Magnússon, umboðsmaður Hákons, fær á Twitter í dag. Magnús Agnar deildi myndbandi af marki sem Hákon skoraði og fékk þetta svar:
„Gerðu það, leyfðu okkur að halda Hákoni fram á sumar en helst lengur. Fyrirfram þakkir frá öllum stuðningsmönnum Kaupmannahafnar." Hákon er aðeins 19 ára gamall og er gríðarlega spennandi leikmaður. Hann á að hjálpa FCK í baráttunni um danska meistaratitilinn seinni hluta tímabilsins.
|