lau 28.jan 2023
[email protected]
Darmian framlengir - Calhanoglu og Bastoni næstir
 |
Darmian á 7 mörk í 89 leikjum á tveimur og hálfu ári hjá Inter. Hann lék áður fyrir AC Milan, Manchester United og Torino meðal annars. |
Inter er búið að semja við bakvörðinn sinn Matteo Darmian sem skrifar undir eins árs framlengingu á núgildandi samningi sínum við félagið.
Í samningnum er ákvæði sem gefur Inter rétt á að framlengja hann um eitt ár til viðbótar, eða til 2025. Hinn 33 ára gamli Darmian leysir þokkalegt hlutverk í varnarlínu Inter þar sem hann getur leikið í báðum bakvarðarstöðunum og sem miðvörður í 3-5-2 leikkerfi Simone Inzaghi. Inter er þá að vinna að samningum við tvo lykilmenn liðsins, tyrkneska miðjumanninn Hakan Calhanoglu og miðvörðinn öfluga Alessandro Bastoni. Calhanoglu og Bastoni eru samningsbundnir Inter til 2024 sem stendur. Calhanoglu verður 29 ára í febrúar á meðan Bastoni á 24 ára afmæli í apríl. Inter hefur verið að spila undir væntingum á tímabilinu og er í þéttum pakka sem vermir 3-5. sæti ítölsku deildarinnar með 37 stig eftir 19 umferðir - þrettán stigum eftir toppliði Napoli.
|