fös 27.jan 2023
[email protected]
Lárus Grétarsson snýr aftur og stýrir Úlfunum í sumar (Staðfest)
 |
Lárus Rúnar Grétarsson. |
Það voru að berast áhugaverð tíðindi því Lárus Rúnar Grétarsson, Lalli Gré, er mættur aftur til starfa hjá Úlfunum - venslafélagi Fram.
Lárus snýr aftur eftir eins árs fjarveru. Hann var þjálfari liðsins tímabilið 2021 en var ekki með liðið í fyrra. Þá var Haukur Hilmarsson þjálfari liðsins. Úlfarnir verða í A-riðli 5. deildar í sumar.
Lárus sem er mörgum íslenskum knattspyrnuáhugamönnum kunnugur og hefur þjálfað nær sleitulaust í tæplega fjóra áratugi.
Úlfarnir eru í samstarfi við Fram og er því vettvangur fyrir uppaldna Framara að halda sambandi við sinn klúbb og til þess að koma ungum upprennandi leikmönnum inn í meistarflokksstarf félagsins. Leikir Úlfanna verða spilaðir á Framvellinum í Úlfarsárdal í sumar.
|