fös 27.jan 2023
[email protected]
Sunderland fær Gelhardt (Staðfest)
 |
 |
Mynd: Heimasíða Sunderland
|
Sunderland er búið að staðfesta komu Joe Gelhardt á lánssamningi frá Leeds United sem gildir út tímabilið.
Gelhardt gæti reynst gríðarlega mikilvægur fyrir Sunderland sem er í harðri umspilsbaráttu um að komast aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir alltof langa fjarveru. Gelhardt er ekki nema 20 ára gamall en býr yfir mikilli reynslu þar sem hann á 40 leiki að baki fyrir aðallið Leeds. Hann þótti eitt mesta efni Englands á sínum tíma og á 21 mark í 28 leikjum fyrir yngri landsliðin. Hjá Sunderland gengur hann til liðs við Amad Diallo sem er á láni frá Manchester United og Edouard Michut sem er á láni frá PSG. Þá var Sunderland einnig að ganga frá kaupum á franska U21 landsliðsmanninum Isaac Lihadji frá Rennes fyrir óuppgefna upphæð.
|