lau 28.jan 2023
[email protected]
Spánn: Pedri gerði sigurmarkið í jöfnum leik
 |
 |
Mynd: EPA
|
Barcelona heldur áfram að safna stigum í spænsku titilbaráttunni en í dag vann liðið ósannfærandi sigur á liði Girona, sem er í eigu City Football Group.
Hinn ungi Pedri gerði eina mark leiksins á 61. mínútu þegar hann fylgdi eftir marktilraun Jordi Alba með því að pota boltanum í netið. Pedri, sem var að spila sinn hundraðasta leik fyrir Barcelona aðeins 20 ára gamall, byrjaði ekki inná. Honum var skipt inn á 26. mínútu þegar Ousmane Dembele þurfti að fara meiddur af velli. Girona fékk fín færi í leiknum en tókst ekki að jafna og niðurstaðan þriðji 1-0 sigur Barcelona í röð. Barca er með sex stiga forystu á toppi spænsku deildarinnar en Real Madrid á leik til góða annað kvöld. Girona er í neðri hluta deildarinnar með 21 stig eftir 19 umferðir. Girona 0 - 1 Barcelona 0-1 Pedri ('61) Í fyrri leik dagsins vann Cadiz gríðarlega mikilvægan sigur á Mallorca og reif sig þannig úr fallsæti. Cadiz hoppaði uppfyrir fjögur félög á stöðutöflunni með þessum sigri og er með 19 stig eftir 19 umferðir. Cadiz sýndi flotta frammistöðu á heimavelli og verðskuldaði sigurinn. Bæði mörk liðsins komu í fyrri hálfleik en seinni hálfleikurinn var jafn og einkenndist af frábærum varnarleik heimamanna. Cadiz 2 - 0 Mallorca 1-0 Theo Bongonda ('10 ) 2-0 Alex Fernandez ('38 , víti)
|