mán 06.feb 2023
[email protected]
Loic Remy í franska boltann (Staðfest)
Franska félagið Brest er búið að staðfesta sex mánaða samning við sóknarmanninn Loic Remy, sem lék meðal annars fyrir Chelsea og Newcastle í enska boltanum.
Remy er 36 ára gamall og hefur spilað í tyrkneska boltanum undanfarin ár. Hann hefur verið liðsfélagi Birkis Bjarnasonar hjá Adana Demirspor í eitt ár en fékk að rifta samningi sínum eftir að hafa aðeins komið við sögu í tveimur leikjum. Þar áður var Remy hjá Caykur Rizespor og skoraði 7 mörk í 27 leikjum. Remy skoraði 7 mörk í 30 landsleikjum fyrir Frakkland en hefur ekki spilað síðan á HM 2014. Brest er í fallbaráttu í Ligue 1, með 20 stig eftir 22 umferðir - tveimur stigum frá fallsæti.
|