mán 06.feb 2023
[email protected]
Elías Rafn hélt hreinu gegn kóresku meisturunum
 |
 |
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
|
Það komu nokkrir Íslendingar við sögu í æfingaleikjum í dag þar sem Elías Rafn Ólafsson varði mark Midtjylland í 1-0 sigri gegn suður-kóresku meisturunum í Ulsan Hyundai.
Elías Rafn er 22 ára gamall og verður áhugavert að fylgjast með honum í Danmörku í sumar. Hörður Ingi Gunnarsson og Valdimar Þór Ingimundarson voru þá í byrjunarliði Sogndal sem tapaði gegn Álaborg í miklum markaleik. Jónatan Ingi Jónsson byrjaði á bekknum hjá Sogndal. Lokatölur urðu 3-5 fyrir Álaborg en enginn Íslendingur komst á blað. Að lokum tapaði Tromsö fyrir Gautaborg og var Hilmir Rafn Mikaelsson í byrjunarliði Tromsö. Hilmir er 19 ára gamall og með treyju númer 9 hjá norska félaginu. Midtjylland 1 - 0 Ulsan Hyundai Sogndal 3 - 5 Aalborg Tromsö 0 - 2 Göteborg
|