mán 06.feb 2023
[email protected]
Njarðvík fær lánsmann frá Kortrijk (Staðfest)
Njarðvík er búið að tryggja sér A-landsliðsmann Malasíu á lánssamningi frá belgíska úrvalsdeildarfélaginu K.V. Kortrijk.
Luqman Hakim mun spila með Njarðvík í sumar og hjálpa félaginu í komandi átökum Lengjudeildarinnar, eftir að Njarðvíkingar rúlluðu yfir 2. deildina í fyrra. Luqman er aðeins tvítugur og var á lista The Guardian yfir 60 efnilegustu fótboltamenn heims árið 2019. Hann hefur verið á mála hjá Kortrijk í rúmlega tvö ár Það verður áhugavert að fylgjast með hvernig Luqman tekst að fóta sig í Lengjudeildinni eftir að hafa verið eitt mesta efni Asíu fyrir nokkrum árum.
|