þri 07.feb 2023
[email protected]
Áfrýja ekki rauða spjaldinu sem Casemiro fékk - Martial, McTominay og Antony fjarverandi á morgun
 |
Casemiro fékk rautt spjald fyrir að taka um hálsinn á Will Hughes. |
Erik ten Hag, stjóri Manchester United, sagði frá því á fréttamannafundi í dag að Anthony Martial og Scott McTominay séu ekki klárir í slaginn og verða ekki með United þegar liðið leikur gegn Leeds á morgun.
Þá er vængmaðurinn Antony ekki leikfær og Casemiro afplánar fyrsta leikinn af þremur í leikbanni eftir rauða spjaldið umtalaða gegn Crystal Palace um síðustu helgi.
Manchester United hefur ákveðið að áfrýja ekki rauða spjaldinu.
„Við ræddum um það, en ég held að í lagalegu ferli hefðum við ekki átt möguleika," segir Ten Hag. Hvernig mun hann leggja upp leikinn án hins mikilvæga Casemiro á miðjunni?
„Ég er stjórinn og það er hlutverk mitt að spila á þeim leikmönnum sem eru til taks hverju sinni. Það eru margir góðir leikmenn í hópnum, við þurfum á sigri að halda og erum með lið sem getur skilað sigri." Líklegt er að brasilíski landsliðsmaðurinn Fred verði með Marcel Sabitzer, lánsmanninum sem kom frá Bayern München, á miðsvæðinu. Sabitzer kom inn af bekknum gegn Palace. Þá hefur verið rætt um þann möguleika að færa miðvörðinn Lisandro Martínez á miðsvæðið.
|