Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 25. janúar 2010 22:00
Magnús Már Einarsson
Allan Borgvardt aftur til Íslands?
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Danski sóknarmaðurinn Allan Borgvardt gæti verið á leiðinni í íslenska boltann á nýjan leik en hann er með tilboð frá tveimur félögum hér á landi.

Allan sló í gegn með FH frá 2003-2005 en hann var tvívegis valinn besti leikmaður Íslandsmótsins.

Árið 2005 fór Allan til Viking í Noregi og síðan til Bryne þar sem að hann hefur leikið undanfarin ár.

Bryne á hins vegar í fjárhagsvandræðum þessa stundina og því má Allan yfirgefa félagið en þetta staðfesti Lars Bach Sörensen umboðsmaður hans við Fótbolta.net í dag.

Allan hefur fengið tilboð frá tveimur íslenskum félögum og einnig félögum í Bandaríkjunum, Danmörku og Noregi.

Allan er ennþá að æfa með Bryne en hann skoraði tvö mörk og var maður leiksins í 4-1 sigri á Vindbjart í æfingaleik í gær.

Í síðasta mánuði var Allan í viðtali á Fótbolta.net en þar sagðist hann ekki útiloka að spila aftur á Íslandi í framtíðinni og nú er möguleiki á að hann spili í Pepsi-deildinni í sumar.

Sjá einnig:
Allan Borgvardt: Mun kannski spila aftur á Íslandi
Slapp
banner