Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fös 25. nóvember 2016 20:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Andri Rúnar skrifar undir hjá Grindavík á morgun
Andri Rúnar hér í leik með Grindavík í sumar
Andri Rúnar hér í leik með Grindavík í sumar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Andri Rúnar Bjarnson mun á morgun skrifa undir samning við knattspyrnudeild Grindavíkur, en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í dag.

Andri Rúnar nýtti sér uppsagnarákvæði í samningi sínum hjá Víkingi R. í síðasta mánuði og er hann núna á leið í Grindavík.

Andri Rúnar var einmitt á láni hjá Grindavík í sumar þar sem hann skoraði sjö mörk í sautján leikjum og hjálpaði liðinu upp í Pepsi-deildina.

Bæði Grindavík og Víkingur R. vildu hafa Andra í sínum röðum, en svo virðist sem hann ætli sér að spila með Grindavík í Pepsi-deildinni næsta sumar.

Andri Rúnar er orðinn 26 ára gamall, en hann gekk til liðs við Víking R. frá BÍ/Bolungarvík fyrir tveimur árum.

Andri skoraði tvö mörk í sautján leikjum með Víkingi í Pepsi-deildinni í fyrra, en hann hafði áður raðað inn mörkum með BÍ/Bolungarvík í neðri deildunum.
Athugasemdir
banner
banner
banner