Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 04. október 2007 20:22
Hörður Snævar Jónsson
Liverpool vilja fá Björn Bergmann á reynslu
Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Enska stórveldið Liverpool vill fá Skagamanninn, Björn Bergmann Sigurðsson á reynslu en þetta staðfesti Bjarni Guðjónsson bróðir hans í samtali við Fótbolta.net nú í kvöld.

Björn Bergmann hefur verið mjög eftirsóttur undanfarið en þessi 16 ára gamli framherji sló í gegn í sumar fyrir frábæra frammistöðu með Skagamönnum.

,,Þeir vilja fá hann á reynslu en hann er ekki búinn að ákveða sig hvort hann fer," sagði Bjarni í samtali við Fótbolta.net

Fleiri lið hafa áhuga á því að fá Björn á reynslu en eins og við greindum frá árið 2006 hafnaði hann því að fara á reynslu til Manchester Untied.

,,Það er mjög mikill áhugi fyrir honum en ég vil síður vera að nefna einhver nöfn," sagði Bjarni að lokum í samtali við Fótbolta.net nú í kvöld.

Sjá einnig:
Björn Bergmann neitaði Manchester United fyrir ÍA
Slapp
banner
banner