Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mán 13. nóvember 2006 09:07
Heimild: Heimasíða ÍA 
Björn Bergmann neitaði Manchester United fyrir ÍA
Björn Bergmann Sigurðsson.
Björn Bergmann Sigurðsson.
Bjarni Guðjónsson gæti gefið Birni, hálfbróður sínum, ýmis góð ráð.
Bjarni Guðjónsson gæti gefið Birni, hálfbróður sínum, ýmis góð ráð.
Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Björn Bergmann Sigurðsson, 15 ára gamal piltur frá Akranesi, neitaði tilboði frá Manchester United um að koma og æfa með enska stórliðinu og ætlar sér að vera áfram hjá ÍA um óákveðinn tíma. Þessi feykiefnilegi strákur hefur vakið mikla athygli að undanförnu og hefur hann fengið tilboð frá fjölda liða erlendis.

Á heimasíðu ÍA kemur fram að Björn hafi fengið mikla athygli eftir að hann spilaði með U17 ára landsliði Íslands gegn Frökkum í haust og þá hafi tilboðum byrjað að rigna inn frá stórliðum í Evrópu. Brescia á Ítalíu, Manchester United, Everton, Leicester City,Reading auk Rosenborg frá Noregi vildu öll fá Björn í sínar raðir.

Björn hefur verið viðloðinn meistaraflokk ÍA en hann verður ekki 16 ára fyrr en á næsta ári. Hann á ekki langt að sækja knattspyrnuhæfileikana, en hann er hálfbróðir Þórðar, Bjarna og Jóhannesar Karls Guðjónssona.

"Ég hef alltaf haft brennandi áhuga á fótbolta og byrjaði að æfa strax í 7.flokki með ÍA, en að öllum öðrum ólöstuðum þá var það pabbi minn, Sigurður Haraldsson; sem kom mér af stað í fótboltanum, hann hjálpaði mér og leiðbeindi mér í byrjun og hvatti mig áfram og hefur stutt við bakið á mér óslitið síðan,” sagði Björn í samtali við heimasíðu ÍA.

“Einnig hafa bræður mínir verið mér mjög hjálplegir og leiðbeint mér eftir að þeir komu heim þeir Þórður og Bjarni og einnig Jóhannes Karl sem er atvinnumaður í Hollandi með AZ Alkmaar."

"Ég er auðvitað spenntur fyrir þessum tilboðum sem borist hafa frá liðum í Evrópu, en ég er jarðbundinn og gef þessu tíma, ég er það ungur ennþá að ég verð að klára grunnskólann hérna heima og þroska mig meira sem knattspyrnumaður."

"Þegar að því kemur að ég stígi vonandi stóra skrefið í atvinnumenskuna þá hef ég marga góða ráðgjafa sem eru meðal annars foreldra mína og bræður,"
sagði Björn sem æfir nú með meistaraflokki ÍA.

"Guðjón Þórðarson er mjög góður þjálfari og hefur hann nú þegar kennt mér margt nýtt í knattspyrnunni, sem á eftir að nýtast mér síðar sem knattspyrnumaður. Aðstaðan er frábær með tilkomu Akraneshallarinnar, sem á örugglega eftir að skila sér vel fyrir fótboltann á Akranesi á komandi árum,” sagði Björn Bergmann.
Slapp
banner
banner