Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
KA
4
6
Valur
Elfar Árni Aðalsteinsson '6 , víti 1-0
1-1 Orri Sigurður Ómarsson '22
1-2 Kristinn Freyr Sigurðsson '120 , víti
Elfar Árni Aðalsteinsson '120 , víti 2-2
2-3 Patrick Pedersen '120 , víti
Ólafur Aron Pétursson '120 , víti 3-3
3-4 Einar Karl Ingvarsson '120 , víti
Josip Serdarusic '120 , misnotað víti 3-4
3-5 Mathias Schlie '120 , víti
Davíð Rúnar Bjarnason '120 , víti 4-5
4-6 Emil Atlason '120 , víti
29.07.2015  -  18:00
Akureyrarvöllur
Borgunarbikar karla
Aðstæður: Fínasta veður. Völlurinn er flottur
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Byrjunarlið:
Davíð Rúnar Bjarnason
Srdjan Rajkovic
Halldór Hermann Jónsson
3. Callum Williams
5. Ívar Örn Árnason (f)
7. Ævar Ingi Jóhannesson ('114)
9. Elfar Árni Aðalsteinsson
11. Jóhann Helgason ('86)
19. Benjamin James Everson
22. Hrannar Björn Steingrímsson ('74)
25. Archie Nkumu

Varamenn:
18. Fannar Hafsteinsson (m)
4. Ólafur Aron Pétursson ('86)
4. Hilmar Trausti Arnarsson
14. Úlfar Valsson ('114)
26. Ívar Sigurbjörnsson
29. Josip Serdarusic ('74)
30. Bjarki Þór Viðarsson

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Hrannar Björn Steingrímsson ('3)
Callum Williams ('74)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Hetjuleg barátta hjá KA en við óskum Val til hamingju.
Elvar Geir Magnússon
120. mín Mark úr víti!
Emil Atlason (Valur)
Emil klárar þetta! Valur í bikarúrslit eftir vítaspyrnukeppni. Viðtöl og skýsrla innan tíðar.
Magnús Már Einarsson
120. mín Mark úr víti!
Davíð Rúnar Bjarnason (KA)
Magnús Már Einarsson
120. mín Mark úr víti!
Mathias Schlie (Valur)
Magnús Már Einarsson
120. mín Misnotað víti!
Josip Serdarusic (KA)
Jósip Klúðrar!!!!!
120. mín Mark úr víti!
Einar Karl Ingvarsson (Valur)
Rajko í boltanum!
120. mín Mark úr víti!
Ólafur Aron Pétursson (KA)
Kale fór í rétt horn en spyrnan var föst
120. mín Mark úr víti!
Patrick Pedersen (Valur)
Aftur í miðjuna. Aldrei spurning
120. mín Mark úr víti!
Elfar Árni Aðalsteinsson (KA)
Hamrar boltanum í netið
120. mín Mark úr víti!
Kristinn Freyr Sigurðsson (Valur)
Virkilega flott víti chippa í miðjuna
120. mín
Við erum á leið í vító!!
120. mín
+1

við erum á lokamínútuni. Allt bendir til vítaspyrnukeppni
120. mín
Inn:Einar Karl Ingvarsson (Valur) Út:Kristinn Ingi Halldórsson (Valur)
Seinasta skipting leiksins
120. mín
Einar Karl Ingvarsson er að gera sig klárann
120. mín
Ein mínúta eftir!!
117. mín
Þreytan er farin að segja til sín hjá báðum liðum
116. mín
Það stefnir allt í vítaspyrnukeppni hér á Akureyrarvelli og þar getur allt gerst
114. mín
Inn:Úlfar Valsson (KA) Út:Ævar Ingi Jóhannesson (KA)
Ævar þarf að fara útaf
113. mín
KA-menn fá hér hornspyrnu, Ævar haltrar eftir þennan sprett
112. mín
Mikil stemming í stúkunni þessa stundina
111. mín
Callum gerir vel og kemur boltanum í burtu
109. mín
Valsarar eiga aukaspyrnu á stórhættulegum stað. Alveg við vítateigslínuna vinstra meginn
106. mín
Seinni hálfleikur framlengingar er hafinn! Valsarar byrja með boltann
105. mín
Hálfleikur Framlengingar

105. mín
Þarna var færi!!!! Valsmenn komast upp að endamörkum. Emil Atla á frábæra sendingu fyrir markið sem rennur framhjá öllum pakkanum. Eitt hlaup á fjærstöng og boltinn hefði verið inni
102. mín
Ekkert verður úr hornspyrnunni
101. mín
Davíð Rúnar enn og aftur að bjarga KA-mönnum, Valsarar eiga hornspyrnu
99. mín
Elfar Árni fellur í teignum og vill fá víti en fær ekki. Þetta var réttur dómur hjá Vilhjálmi
98. mín
Valsmenn eiga innkast á vallarhelmingi KA ekki mikið um færi hér í byrjun framlengingar
92. mín
Serdarusic með skot sem fer hátt yfir markið
91. mín
Leikurinn er hafinn ný. KA-menn byrja með boltann
90. mín
Bæði lið eiga eina skiptingu eftir
90. mín
+4

Venjulegum leiktíma er lokið! Við erum á leið í framlengingu!

90. mín
Við erum kominn í uppbótartíma hér á Akureyrarvelli og spennan er gjörsamlega rafmögnuð
89. mín
Bjarni Ólafur með flott skot sem Rajko ver vel
86. mín
Inn:Ólafur Aron Pétursson (KA) Út:Jóhann Helgason (KA)
Davíð Rúnar tekur við fyrirliðabandinu
84. mín
Einungis 6 mínútur eftir af venjulegum leiktíma. Fáum við framlengingu hér á Akureyrarvelli
84. mín
Ben Everson nálægt því að komast í gegn en Kale vel á verði í markinu
77. mín
Davíð Rúnar bjargar aftur á línu!!!!!! Rajko fer út í fyrirgjöf og slær hann beint á Kristinn Freyr sem á skot en Davíð Rúnar bjargar meistaralega á línu
74. mín
Inn:Josip Serdarusic (KA) Út:Hrannar Björn Steingrímsson (KA)
Halldór Hermann fer í bakvörðinn fyrir Hrannar og Josip þá framarlega á miðjuna
74. mín Gult spjald: Callum Williams (KA)
74. mín
Davíð Rúnar með skalla í stöngina!!!!!!! Lang innkast endar með því að Davíð Rúnar á skalla í stöngina. Þarna voru valsarar hepnir
70. mín
Inn:Mathias Schlie (Valur) Út:Iain James Williamson (Valur)
Önnur breyting gestanna
70. mín
Ævar Ingi kemur með eitraða sendingu fyrir þar sem Ben lúrir á fjærstöng. Kristinn Ingi nær hinsvegar að skalla boltann frá áður en Ben kemst í hann
67. mín
Inn:Emil Atlason (Valur) Út:Sigurður Egill Lárusson (Valur)
Hér kemur skiptingin
66. mín
Emil Atla er að gera sig klárann
65. mín Gult spjald: Kristinn Freyr Sigurðsson (Valur)
Fyrir brot á Ævari við hliðarlínuna
63. mín
Patrick Pedersen í DAUÐAfæri ótrúlega vel varið samt sem áður hjá Rajko. Eftir flott spil fær Palli fríann skalla á markteig en tekst að klúðra því
58. mín
Hrannar Björn gerir vel í að koma boltanum fyrir. Archange nær til boltans en 5 Valsarar ná boltanum af honum í sameiningu
57. mín
Heimamenn byrja seinni hálfleikinn mun betur
51. mín
Ekkert kemur uppúr hornspyrnunni
50. mín
Haukur Páll með fastann skalla að marki sem Rajko ver mjög vel. Valsmenn eiga hornspyrnu
48. mín
Ian Williamson fær boltann í hendina inn í vítateig. Heimamenn heimta víti en fá ekkert
46. mín
Leikurinn er hafinn á ný og það eru valsmenn sem byrja með boltann
45. mín

Arnar Helgi Magnússon
45. mín
Hálfleikur
Vilhjálmur Alvar flautar til hálfleiks. KA-menn komust yfir á 6.mínútu þegar Elfar Árni skoraði úr víti. Eftir það hefur leikurinn verið eign Valsmanna. Staðan hinsvegar 1-1 og við eigum von á spennandi seinni hálfleik
43. mín
Bjargað a línu!!!!! Flott sókn Valsmanna endar með því að Kristinn Freyr á skot sem fer í gegnum Rajko og er á leiðinni inn. Davíð Rúnar Bjarnason var hinsvegar mættur á línunua og bjargar
41. mín
Sigurður Egill með skot úr teignum sem Rajko ver
39. mín
KA-menn hafa ekki gert neitt af viti síðan þeir komust yfir í leiknum

32. mín
Elfar Árni fellur eftir baráttu við Orra Sigurð. Stúkann vill fá eitthvað en Vilhjálmur Alvar dæmir ekkert. Réttur dómur
29. mín
Orri Sigurður á skot sem fer rétt yfir markið. Pressa Valsara er þung þessa stundina
25. mín
Valsmenn miklu grimmari þessa stundina
22. mín MARK!
Orri Sigurður Ómarsson (Valur)
Stoðsending: Haukur Páll Sigurðsson
Valsmenn hafa jafnað. Þetta mark er heldur betur umdeilt. Hornspyrna inn í teiginn og KA-menn ná ekki að koma boltanum frá. Orri fær skotfæri í teignum og skorar.

Frá mínu sjónarhorni var klárlega brotið á Rajko í horninu
21. mín
Patrick Pedersen kemst skotfæri eftir klafs í teignum en skot hans yfir markið
21. mín
Sigurður Egill kemst í gegn og á skot sem Rajko ver í horn
18. mín
Spyrnan frá Bjarna Ólafi er beint á Rajko
17. mín
Gestirnir eiga aukaspyrnu á hættulegum stað
12. mín
Haukur Páll tekur boltann á lofti og á skot sem fer hátt yfir markið
9. mín
Enn og aftur eru KA-menn að skora á upphafsmínútum leikja. Sigurleikir gegn Þór og Fjölni til dæmis
7. mín
Þetta opnar leikinn algjörlega upp á gátt. Það verður fróðlegt að sjá hvernig gestirnir bregðast við þessu marki
6. mín Mark úr víti!
Elfar Árni Aðalsteinsson (KA)
Elfar skorar af fádæma öryggi. Setur Kale í vitlaust horn
6. mín
Elfar Árni er feldur í teignum. Klárlega farið í hann en spurning hvort hann hafi verið með stjórn á boltanum
5. mín
KA-menn fá VÍTI!!!!!!
4. mín
Palli Pedersen tekur spyrnuna sem fer hátt yfir markið
3. mín Gult spjald: Hrannar Björn Steingrímsson (KA)
Hrannar brýtur á Sigurði Lárussyni þegar hann var við það að sleppa í gegn. Valur á aukaspyrnu á fínum stað
1. mín
Leikur hafinn
Heimamenn byrja með boltann!
Fyrir leik
Liðin ganga hér inná völinn. Heimamenn í KA leika í gulum búningum en Valsmenn í rauðum. Allt eins og þetta á að vera
Fyrir leik
15 mínútur í að leikurinn hefjist!
Fyrir leik
Veðrið hér er fínt. Sól, nánast enginn vindur og 9 stiga hiti
Fyrir leik
Bæði lið eru mætt að hita upp
Fyrir leik
KA er í 5. sæti 1. deildar en Valur er í 3. sæti Pepsi-deildarinnar. KA teflir fram sama byrjunarliði og vann 2-1 sigur gegn Fjarðabyggð í 1. deildinni í síðustu umferð.

Það eru margar breytingar á liði Vals frá 0-1 tapinu gegn Val í Pepsi-deildinni í síðustu umferð. Thomas Guldborg Ghristensen, Iain Williamson, Haukur Páll Sigurðsson og Patrick Pedersen koma allir inn í byrjunarliðið. Pedersen var í banni gegn Víkingi.

Úr byrjunarliðinu fara Einar Karl Ingvarsson, Baldvin Sturluson, Gunnar Gunnarsson og Tómas Óli Garðarsson. Mathias Schlie, nýr danskur miðjumaður Vals, byrjar á bekknum.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Dómari hér í dag er Vilhjálmur Alvar Þórarinsson og honum til aðstoðar verða Gunnar Sverrir Gunnarsson og Oddur Helgi Guðmundsson
Fyrir leik
Halldór Hermann Jónsson, KA
Ég er svakalega spenntur. Það er skemmtilegt að komast svona langt í bikar og fá að mæta svona sterku liði, hvað þá liði sem maður spilaði með í fyrra. Það er bara draumur í dós. Það er mikill spenningur fyrir þessum leik hér fyrir norðan. Margir af þessum strákum sem eru í KA hafa ekki áður komist svona nálægt bikarnum. Við erum allir mjög spenntir. Það yrði hrikalega að komast í úrslitaleikinn en það er erfitt verk fyrir höndum. Valur er með mjög sterkan leikmannahóp og þetta verður ekkert auðvelt.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Leið KA í undanúrslitin:
KA 6 - 0 Dalvík/Reynir
KA 4 - 0 Álftanes
Breiðablik 0 - 1 KA
KA 2 - 1 Fjölnir

Leið Vals í undanúrslitin:
Valur 4 - 0 Selfoss
Fjarðabyggð 0 - 4 Valur
Víkingur R. 1 - 2 Valur
Magnús Már Einarsson
Fyrir leik
Andri Fannar Stefánsson, Valur:
Við þurfum að mæta 100% klárir á okkar hlutum og ná upp þeim krafti og gæðum sem við höfum verið að sýna meirihluta tímabilsins. KA-liðið er það gott lið að ef við mætum ekki klárir í slaginn þá refsa þeir okkur strax, eins og þeir gerðu gegn Fjölnismönnum í 8-liða úrslitunum.
Magnús Már Einarsson
Fyrir leik
Góða kvöldið!
Hér verður fylgst með leik KA og Vals undanúrslitum Borgunarbikarsins. Leikið er á Akureyri en hinn undanúrslitaleikurinn er viðureign KR og ÍBV á morgun.
Magnús Már Einarsson
Byrjunarlið:
1. Ingvar Þór Kale (m)
2. Thomas Guldborg Ghristensen
3. Iain James Williamson ('70)
7. Haukur Páll Sigurðsson
8. Kristinn Ingi Halldórsson ('120)
9. Patrick Pedersen
10. Kristinn Freyr Sigurðsson
11. Sigurður Egill Lárusson ('67)
20. Orri Sigurður Ómarsson
21. Bjarni Ólafur Eiríksson
23. Andri Fannar Stefánsson

Varamenn:
33. Anton Ari Einarsson (m)
4. Einar Karl Ingvarsson ('120)
16. Tómas Óli Garðarsson
17. Andri Adolphsson
19. Baldvin Sturluson
19. Emil Atlason ('67)
22. Mathias Schlie ('70)

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Kristinn Freyr Sigurðsson ('65)

Rauð spjöld: