Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Mjólkurbikar karla
Keflavík
68' 2
0
Breiðablik
Mjólkurbikar karla
Víkingur R.
LL 4
1
Víðir
Mjólkurbikar karla
KA
LL 2
1
ÍR
Mjólkurbikar karla
ÍA
LL 3
0
Tindastóll
Mjólkurbikar karla
Afturelding
LL 4
1
Dalvík/Reynir
Mjólkurbikar karla
Grótta
LL 0
3
Þór
Mjólkurbikar karla
Höttur/Huginn
LL 0
1
Fylkir
Mjólkurbikar karla
ÍBV
LL 1
2
Grindavík
Mjólkurbikar karla
Árbær
LL 0
3
Fram
Víkingur R.
1
2
Grindavík
Geoffrey Castillion '25 1-0
1-1 Alexander Veigar Þórarinsson '67
1-2 Andri Rúnar Bjarnason '90
08.05.2017  -  19:15
Víkingsvöllur
Pepsi-deild karla 2017
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Byrjunarlið:
1. Róbert Örn Óskarsson (m)
3. Ívar Örn Jónsson
5. Milos Ozegovic ('59)
7. Alex Freyr Hilmarsson
9. Ragnar Bragi Sveinsson ('72)
11. Dofri Snorrason
12. Halldór Smári Sigurðsson
21. Arnþór Ingi Kristinsson ('86)
22. Alan Lowing
25. Vladimir Tufegdzic
27. Geoffrey Castillion

Varamenn:
7. Erlingur Agnarsson ('72)
8. Viktor Bjarki Arnarsson ('59)
12. Kristófer Karl Jensson
14. Bjarni Páll Linnet Runólfsson
17. Gunnlaugur Fannar Guðmundsson
18. Örvar Eggertsson ('86)
24. Davíð Örn Atlason

Liðsstjórn:
Milos Milojevic (Þ)
Einar Ásgeirsson
Þórir Ingvarsson
Ísak Jónsson Guðmann
Hajrudin Cardaklija
Dragan Kazic

Gul spjöld:
Ragnar Bragi Sveinsson ('15)
Milos Ozegovic ('23)
Viktor Bjarki Arnarsson ('59)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
ÓTRÚLEGT, LEIKNUM ER LOKIÐ!!!! DRAMATÍSKUR SIGUR GRINDAVÍKUR STAÐREYND!!!! WHAT A COMEBACK!!!
90. mín
HÆTTU NÚ ALVEG!!! TUFA Í DAUÐAFÆRI Á MARKTEIG EN NÆR EKKI AÐ SKORA!!!
90. mín MARK!
Andri Rúnar Bjarnason (Grindavík)
MAAAAAAAAAAAAAAAAAAAARK!!!!! ANDRI RÚNAR BJARNASON ER AÐ TRYGGJA GRINDAVÍK SIGURINN MEÐ SKALLAMARKI Í UPPBÓTARTÍMA Á SÍNUM GAMLA HEIMAVELLI!!!!! ÞVÍLÍK DRAMATÍK!!!!!
88. mín Gult spjald: Aron Freyr Róbertsson (Grindavík)
Aron Freyr nær sér í gult spjald, nóg af þeim í þessum leik.
86. mín
Inn:Örvar Eggertsson (Víkingur R.) Út:Arnþór Ingi Kristinsson (Víkingur R.)
Síðasta skipting Víkings, Örvar Eggertsson kemur inn fyrir Arnþór Inga.
79. mín
ÞARNA VAR GRINDAVÍK NÁLÆGT ÞVÍ AÐ KOMAST YFIR!! Gestirnir eru að taka völdin hérna og eru miklu grimmari. Andri Rúnar með ansi flotta takta í teignum og lætur síðan vaða, svo fylgir barátta í teignum en Róbert Örn nær á endanum boltanum.
75. mín
Dauðafæri hjá Víkingi!! Varamaðurinn Erlingur Agnarsson með fáránlega góðan sprett, fylgir honum eftir með meistaralega stungusendingu inn á Castillion. Castillion kemst framhjá Jajalo í markinu en markverðinum tókst þó að þröngva Hollendingnum úr góðu færi. Castillion fer að reyna að snúa sér og gefa svo boltann fyrir en þá hreinsa Grindvíkingar.
73. mín
Markið hefur lyft Grindvíkingum upp, þeir eru orðnir talsvert grimmari! Andri Rúnar ógnandi fram á við.
72. mín
Inn:Erlingur Agnarsson (Víkingur R.) Út:Ragnar Bragi Sveinsson (Víkingur R.)
Víkingur gerir skiptingu. Erlingur Agnarsson kemur inn fyrir Ragnar Braga.
70. mín
Það held ég nú.. Grindavík hefur jafnað í víkinni, það var fátt sem benti til þess en svona er fótboltinn, hlutirnir gerast ekki endilega með fyrirvara. Virkilega snyrtileg sókn hjá gestunum, sem hafa ekkert verið að sækja allt of mikið.
67. mín MARK!
Alexander Veigar Þórarinsson (Grindavík)
Stoðsending: Gunnar Þorsteinsson
MAAAAAARK!!! GRINDAVÍK JAFNAR METIN, EIGINLEGA UPP ÚR ÞURRU!!! Boltinn berst á Gunnar Þorsteinsson á kantinum og Gunnar kemur með frábæra sendingu inn í teiginn og þar mætir Alexander Veigar á sprettinum og skorar. Virkilega vel gert, flott skyndisókn!!!!
65. mín
Hættuleg sókn hjá Víkingi, flott hagnaðarregla og Tufa fer upp meðfram teignum og gefur fyrir, en boltinn fer beint í hendurnar á Jajalo.
64. mín Gult spjald: Milos Zeravica (Grindavík)
Milos Zeravica fær gult spjald fyrir heldur groddaralega tæklingu.
63. mín
Alexander Veigar reynir skot fyrir utan teig á hinum enda vallarins en boltinn fer yfir.
62. mín
Flott skyndisókn hjá Víkingi. Tufa þýtur áfram með boltann og stingur Aron Frey af, leggur boltann svo á Castillon sem fer framhjá Birni Berg með flottri snertingu en þrumar boltanum svo yfir markið.
59. mín Gult spjald: Viktor Bjarki Arnarsson (Víkingur R.)
Viktor Bjarki ekki lengi að stimpla sig inn, fær spjald fyrir að standa fyrir boltanum þegar Sam Hewson ætlar að taka aukaspyrnu á miðjunni. Hewson þarf reyndar að passa að halda ró sinni, sparkaði aðeins til Viktors en er á spjaldi.
59. mín
Inn:Viktor Bjarki Arnarsson (Víkingur R.) Út:Milos Ozegovic (Víkingur R.)
Víkingur gerir breytingu, Milos Ozegovic fer af velli og Viktor Bjarki kemur inn á. Sá fyrrnefndi átti ekkert sérstakan leik, var hálf týndur á miðjunni.
54. mín
Inn:Aron Freyr Róbertsson (Grindavík) Út:Will Daniels (Grindavík)
Fyrsta skipting leiksins, Aron Freyr Róbertsson kemur inn á fyrir William Daniels.
50. mín
Við fengum næstum því endurtekningu frá markinu áðan. Tufa kom með langan bolta fram og Ragnar Bragi í þetta skiptið mætir á sprettinum, er að ná að hrista Björg Berg af sér en Jajalo nær að klófesta boltann í tæka tíð.
46. mín
Samstuð í vitateig Grindavíkur, Tufa liggur eftir og sjúkraliðar mæta á vettvang. Vonandi er í lagi með hann.
46. mín
Leikurinn er hafinn á ný. Heimamenn byrja nú með boltann og sækja í átt að Víkingsheimilinu.
45. mín
Hálfleikur
Vilhjálmur Alvar flautar til leikhlés í Víkinni. Heimamenn leiða verðskuldað 1-0, satt best að segja hefði forskotið frekar átt að vera stærra heldur en hitt. Eftir rólega byrjun lifnaði vel yfir leiknum og Víkingar hafa verið talsvert sterkari aðilinn.
42. mín
ÞRUMUSKOT HJÁ HALLDÓRI SMÁRA!! En Kristijan Jajalo ver virkilega vel! Halldór tók boltann á lofti og skotið var ansi fast, en Jajalo er að vinna fyrir kaupinu sínu þessa stundina.
39. mín
Alex Freyr hefur fengið að finna fyrir því gegn sínum gömlu félögum. Fékk þrumuskot í andlitið eða brjóstið áðan og lá eftir. Var núna dúndraður niður af Brynjari Ásgeiri.
39. mín
Víkingar eru að þjarma verulega að gestunum og ég gæti vel trúað því að þeir setji annað mark fyrir leikhlé!
38. mín
Fyrsta leik kvöldsins í Pepsi deildinni lokið. Ásgeir Sigurgeirsson tryggði KA frábært 2-2 jafntefli gegn FH með marki undir blálokin.
37. mín
Nóg að gerasst!!! Boltinn endar í markinu, Tufa skallar boltann í netið en búið að dæma brot!
36. mín
Annað horn, hætta hérna! Castillon kemst í boltann eftir hornspyrnu, hann dettur til hliðar og Halldór Smári nær skoti sem Jajalo ver yfir!
36. mín
ÞVÍLÍK VARSLA HJA JAJALO!!!!!!! CASTILLON Í DAUÐAFÆRI EFTIR FLOTTA FYRIRGJÖF, kemur með skallann en Jajalo blakar honum meistaralega yfir!! Skil ekki hvernig þetta var ekki mark, Castillon var nánast inni í markinu þegar hann skallaði!!
28. mín
Slök spyrna hjá Arnþóri Inga sem fer yfir markið.
27. mín Gult spjald: Sam Hewson (Grindavík)
Sam Hewson fær gult spjald fyrir ansi groddaralega tæklingu og Víkingur á aukaspyrnu á STÓRHÆTTULEGUM stað!
25. mín MARK!
Geoffrey Castillion (Víkingur R.)
Stoðsending: Alex Freyr Hilmarsson
MAAAAAAAAAARK!!!! ÞVÍLÍKUR HRAÐI HJÁ CASTILLION!!!! Hann fær langa sendingu fram frá Alex Frey Hilmarssyni og stingur Björn Berg Bryde gjörsamlega af og leggur boltann síðan yfir markvörðinn. GLÆSILEGT hjá Castillon!!! Lét varnarmanninn líta hryllilega út þarna.
23. mín Gult spjald: Milos Ozegovic (Víkingur R.)
Milos Ozegovic hendir í ansi harða tæklingu á Sam Hewson á miðjum vellinum. Hárrétt hjá Vilhjálmi að lyfta gula spjaldinu hér.
20. mín
Þarna munar litlu við mark Grindavíkur!! Ívar Örn er með öfluga hornspyrnu sem dettur fyrir fætur manna í markteignum. Varnarmaður Grindavíkur ætlar að hreinsa en dúndrar boltanum beint í Arnþór Inga að mér sýndist, og boltinn flýgur af honum og yfir.
18. mín
ÞARNA SKALL HURÐ NÆRRI HÆLUM!!! Gunnar Þorsteinsson kemur með flott skot á lofti utan teigs, sem virðist samt nokkuð viðráðanlegt. Róbert Örn missir hins vegar boltann og hann dettur fyrir fætur William Daniels. Einhvern veginn tekst Víkingum þó að bjarga þessu!
16. mín
Dofri Snorrason með prýðilegan sprett upp kantinn, nær síðan fyrirgjöf en hún endar í hrömmunum á Kristijan Jajalo.
15. mín Gult spjald: Ragnar Bragi Sveinsson (Víkingur R.)
Þetta var nú meira klúðrið!! Boltakrakkarnir henda auka bolta inn á völlinn þegar boltinn er farinn í leik eftir innkast. Ragnar Bragi Sveinsson sparkar auka boltanum síðan eftir vellinum, í átt að alvöru boltanum, í stað þess að sparka honum beint út af. Ég skil ekki AF HVERJU Í ÓSKÖPUNUM hann gerði það, en hann fær allavega gult spjald fyrir vikið. Hugsar boltakrökkunum sjálfsagt þegjandi þörfina.
13. mín
Ekki mikið að gerast þessa stundina. Menn eru að þreifa fyrir sér og reyna að finna opnanir en lítið gengur.
8. mín
Ágæt skyndisókn hjá Grindavík! Víkingar missa boltann klaufalega á miðjunni, boltinn berst til Alexanders Veigars sem keyrir á vörn Víkings og gefur svo yfir á William Daniels sem er kominnn inn í teig. Róbert fer út og William kemst framhjá honum en þó er ekki mikil hætta, varnarmenn Víkings bægja hættunni frá. Sókn Grindavíkur heldur áfram en engin frekari hætta skapast.
8. mín
Heimamenn hafa verið með völdin fyrstu mínúturnar og eru nær alfarið með boltann. Grindvíkingar eru þéttir til baka með fimm manna vörn.
6. mín
Öflugur sprettur hjá Castillon sem er kominn upp að endalínu, inni í teignum. Reynir að leggja boltann fyrir en Kristijan Jajalo nær að handsama knöttinn.
3. mín
Víkingur fær hornspyrnu en boltinn svífur yfir alla í teignum og endar aftur fyrir.
1. mín
Leikurinn er hafinn og það eru Grindvíkingar sem byrja með boltann. Þeir sækja í átt að Víkingsheimilinu. Það hefur bætt aðeins í vindinn og gulklæddu gestirnir virðast spila frekar á móti vindi heldur en hitt.

En já, vonandi fáum við hörkuleik hér í kvöld!
Fyrir leik
Fínasta mæting í Víkina! Ekki mjög margir Suðurnesjamenn en slatti af heimamönnum. Nú styttist í að fjörið byrji!
Fyrir leik
Rétt um stundarfjórðungur í að leikurinn hefjist. Einn leikur er í gangi í þessum töluðu orðum, en FH og KA eru að gera 1-1 jafntefli í Hafnarfirðinum þar sem nú er hálfleikur.

Tveir aðrir leikir hefjast klukkan 19:15. Fjölnir og Breiðablik mætast í Grafarvoginum og ÍA fær Val í heimsókn á Skipaskaga.
Fyrir leik
Það er mikið talað um útlendinga í íslenska boltanum. Sumir þykja frábærir, aðrir miðlungs og sumir skelfilegir. Í byrjunarliði Víkings eru fjórir erlendir leikmenn og enginn á bekknum. Í liði Grindavíkur eru einnig fjórir erlendir leikmenn og einn til viðbótar á bekknum. Margir þessara útlendinga hafa nú spilað áður á Íslandi, þeir Alan Lowing og Sam Hewson voru nú einu sinni samherjar hjá Fram og bjuggu meira að segja saman. Báðir sjóaðir hér á Íslandi. Inn á milli eru ný andlit á borð við Geoffrye Castillion og Milosana tvo.
Fyrir leik
Ég verð að sjálfsögðu með annað augað á Twitter á meðan leik stendur og ég tek því fagnandi ef þið hafið eitthvað um leikinn að segja. Notið myllumerkið #fotboltinet og þá erum við að tala saman. Vel valin tíst verða birt hér í textalýsingunni, þetta er þitt tækifæri til að öðlast 15 mínútur af frægð.
Fyrir leik
Það verður að segjast að grasið í víkinni er algjörlega til fyrirmyndar. Sjaldan sem maður sér völl í svona frábæru ásigkomulagi í fyrsta heimaleik sumarsins. Það hafa heldur betur skipst á skin og skúrir undanfarnar vikur, með smá snjó inn á milli, en þeir virðast kunna þetta upp á 10 í víkinni.
Fyrir leik
Það er hlýtt og milt í Fossvoginum en einn og einn dropinn dettur úr loftinu. Kjöraðstæður til knattspyrnuiðkunar!
Fyrir leik
Það verða að teljast góðar fréttir fyrir Grindvíkinga að Andri Rúnar Bjarnason heldur sæti sínu í byrjunarliðinu. Hann fór meiddur af velli í fyrri hálfleik gegn Stjörnunni en virðist hafa náð sér í tæka tíð fyrir þennan leik. Það var alls ekkert sjálfsagt! Jafnframt gaman fyrir hann að ná þessum leik gegn sínum gömlu félögum.
Fyrir leik
Heimamenn gera engar breytingar á sínu liði frá því í 2-1 sigrinum gegn KR, enda engin ástæða til ef allir eru heilir. Grindavík gerir eina breytingu, annar markaskorarinn frá því í síðasta leik, Magnús Björgvinsson, er ekki í hóp. William Daniels kemur inn í byrjunarliðið í hans stað.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin í hús!
Fyrir leik
Nú styttist heldur betur í að byrjunarliðin detti í hús, einungis um 10 mínútur.
Fyrir leik
Nokkur spurningamerki eru á liði Grindvíkinga fyrir leik kvöldsins. Andri Rúnar Bjarnason þurfti að fara meiddur af velli gegn Stjörnunni og óvíst er með þátttöku hans í víkinni. Fyrir á meiðslalistanum voru þeir Rodrigo Gomes Mateo, Juan Ortiz Jimenez og Marinó Axel Helgason. Rodrigo ku vera næstur á blað en spurning hvort hann sé búinn að ná sér. Kemur allt í ljós á slaginu 18:15!
Fyrir leik
Óli Stefán Flóventsson, þjálfari Grindavíkur, var ekkert allt of sáttur með jöfnunarmark Stjörnunnar gegn sínum mönnum. Í viðtali sagði hann að þrjú brot hefðu átt sér stað í aðdraganda marksins.
Fyrir leik
Hvorugu þessara liða var spáð neitt sérstöku gengi í Pepsi-deildinni 2017 hér á Fótbolta.net.

Grindavík var spáð 11. sæti deildarinnar og Víkingi var spáð 8. sætinu. Grindvíkingar eru vissulega nýliðar og hafa ekki spilað í Pepsi-deildinni síðan 2012 (og verið sárt saknað) og kannski væri bara flott afrek fyrir þá að halda sér uppi. Víkingur hlýtur hins vegar að stefna á Evrópusæti hið minnsta, og byrjaði sannarlega vel á þeirri vegferð!

Annars mæli ég sterklega með því að kíkja á spárnar sem hlekkt var á hér að ofan, þar sem margt skemmtilegt kemur fram um liðin, styrkleika þeirra og veikleika.
Fyrir leik
Grindavík fór einnig vel af stað með 2-2 jafntefli á heimavelli gegn Stjörnunni í miklu óveðri, en aldrei þessu vant var ekki sól og blíða í Grindavík. Þeir gulklæddu voru þó sjálfsagt svekktir með úrslitin, enda komust þeir tvisvar yfir og Stjarnan tryggði sér stig með marki frá Daníel Laxdal á 83. mínútu! Markaskorarar Grindavíkur í leiknum voru þeir Alexander Veigar Þórarinsson og Magnús Björgvinsson, en ég spái því að mikið muni mæða á þeim í sumar.
Fyrir leik
Bæði lið byrjuðu Íslandsmótið með ágætum, sérstaklega heimamenn í Víkingi. Þeir unnu flottan sigur gegn KR í Vesturbænum í fyrstu umferðinni, 2-1, eftir að hafa lent undir snemma leiks. Það voru þeir Dofri Snorrason og Geoffrey Castillon sem skoruðu mörk Víkings í seinni hálfleiknum. Ég spái því að sá síðarnefndi verði einn af markahæstu leikmönnum sumarsins og fái viðurnefnið Hollendingurinn fljúgandi. Ég er sjálfur nokkuð viss um að ég kannist við hann úr Football Manager frá sínum tíma.
Fyrir leik
Komið þið sælir kæru lesendur og verið hjartanlega velkomnir í beina textalýsingu frá viðureign Víkings og Grindavíkur í 2. umferð Pepsi-deildarinnar. Leikurinn hefst í hinum sígræna Fossvogi á slaginu 19:15.
Byrjunarlið:
12. Kristijan Jajalo (m)
2. Hákon Ívar Ólafsson
6. Sam Hewson
7. Will Daniels ('54)
8. Gunnar Þorsteinsson (f)
9. Matthías Örn Friðriksson
16. Milos Zeravica
23. Brynjar Ásgeir Guðmundsson
24. Björn Berg Bryde
80. Alexander Veigar Þórarinsson
99. Andri Rúnar Bjarnason

Varamenn:
3. Adam Frank Grétarsson
5. Nemanja Latinovic
20. Dagur Ingi Hammer Gunnarsson
25. Aron Freyr Róbertsson ('54)
26. Sigurjón Rúnarsson
33. Sigurður Bjartur Hallsson

Liðsstjórn:
Óli Stefán Flóventsson (Þ)
Maciej Majewski
Milan Stefán Jankovic
Arnar Már Ólafsson
Guðmundur Ingi Guðmundsson
Sigurvin Ingi Árnason
Eiríkur Leifsson
Þorsteinn Magnússon

Gul spjöld:
Sam Hewson ('27)
Milos Zeravica ('64)
Aron Freyr Róbertsson ('88)

Rauð spjöld: