Salah, Rashford, Guehi, Ten Hag, Dewsbury-Hall og fleiri í pakka dagsins
ÍBV
0
0
Fylkir
22.09.2017  -  16:00
Hásteinsvöllur
Pepsi-deild kvenna
Aðstæður: Blautt, mjög blautt. Algjört logn en völlurinn er á floti.
Dómari: Kristján Már Ólafs
Maður leiksins: Caragh Milligan (Fylkir)
Byrjunarlið:
1. Adelaide Anne Gay (m)
2. Sóley Guðmundsdóttir (f)
3. Júlíana Sveinsdóttir
4. Caroline Van Slambrouck
6. Sesselja Líf Valgeirsdóttir
7. Rut Kristjánsdóttir
10. Clara Sigurðardóttir
11. Sigríður Lára Garðarsdóttir
15. Adrienne Jordan
19. Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir ('71)
22. Katie Kraeutner

Varamenn:
30. Guðný Geirsdóttir (m)
13. Telma Aðalsteinsdóttir
14. Díana Helga Guðjónsdóttir ('71)

Liðsstjórn:
Ian David Jeffs (Þ)
Sigríður Sæland Óðinsdóttir
Jón Ólafur Daníelsson
Óskar Rúnarsson
Sigþóra Guðmundsdóttir
Georg Rúnar Ögmundsson
Kristján Yngvi Karlsson
Dean Sibons

Gul spjöld:
Rut Kristjánsdóttir ('53)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Leik lokið í Eyjum. Markalaust, ekki skemmtilegustu 90 mínútur af fótbolta sem ég hef horft á.
88. mín
Sóley stoppar enn eina sóknina hjá gestunum, verið virkilega öflug í vörn ÍBV og best í heimaliðinu.
86. mín
Berglind Rós og Sísí féllu við í teig gestanna en dómarinn dæmdi ekkert og halda Fylkiskonur boltanum.
84. mín
Sóley með flotta hornspyrnu beint á kollinn á Sísí sem skallar rétt yfir markið.
83. mín
Sóley Guðmundsdóttir orðin efst í hápressu hjá ÍBV. Munaði mjög litlu að hún kæmist framhjá Þórdísi í markinu sem gerði vel og bjargaði.
78. mín
Gott skot frá Milligan sem hefur verið spræk í dag.
78. mín
Jasmín í fínu skallafæri í teignum en Adelaide ver vel.
75. mín
Eftir mikinn darraðardans í teig ÍBV kom Adrienne boltanum burt. Adelaide hafði reynt að kýla boltann burt.
75. mín
Frábær varsla frá Adelaide, geggjað skot frá Kaitlyn en Adelaide sá við henni. Þarna mátti engu muna.
74. mín
Clara með fínt skot sem Þórdís ver í markinu, mjög gott færi en Clara náði ekki nægum krafti í skotið.
72. mín
Sísí var nálægt því að tækla boltann í mark Fylkis eftir fína sókn ÍBV.
71. mín
Inn:Díana Helga Guðjónsdóttir (ÍBV) Út:Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir (ÍBV)
Ingibjörg verið að spila gjörsamlega út úr stöðu í þessum leik sökum þess að framherjar liðsins eru ekki leikfærir. Ingibjörg spilaði á miðjunni í fyrri hálfleik og frammi í þeim síðari.
67. mín
Sísí á fínt skot yfir markið úr góðu færi, nánast ekkert gerst í þessum leik.
66. mín
Mikill atgangur í teig ÍBV þar sem einhverjir frá Fylki vildu vítaspyrnu, það hefði verið full gróft.
64. mín
Milligan nærri því að valda usla hjá ÍBV en Adelaide varði skot hennar nokkuð þægilega.
61. mín
Sísí með skot á markið eftir að Clara lagði boltann á hana, sirka 35 metra frá markinu. Þórdís greip vel.
60. mín
Clara með skot fyrir utan teig eftir fyrirgjöf frá Adrienne. Náði ekki nægum krafti í skotið.
59. mín
Inn:Kaitlyn Johnson (Fylkir) Út:Rakel Leósdóttir (Fylkir)
Kaitlyn kemur inn fyrir Rakel, Kaitlyn líklega ein besta fótboltakonan í Fylki og verður vonandi spræk á lokamínútunum.
57. mín
Adrienne með góða sendingu á Sísí sem tekur frábærlega á móti boltanum og kemst í gegn. Virðist týna boltanum aðeins undir fótunum sínum og færið fer því í súginn. Þórdís gerði einnig vel í markinu og mætti Sísí á réttum tíma.
56. mín
Ingibjörg með fast skot en yfir markið.
55. mín
Milligan með fínan sprett en slakt skot beint á Adelaide.
53. mín Gult spjald: Rut Kristjánsdóttir (ÍBV)
Er aðeins of sein í Milligan úti á kantinum, aukaspyrna á fínum stað.
51. mín
Sóley virtist vera komin í virkilega gott færi eftir fyrirgjöf frá hægri, var ekki nógu lengi að athafna sig og Sunna (sýndist mér) komst fyrir skotið.
49. mín
Alvöru tækling frá Adrienne sem hefði vel getað verið spjölduð þarna en fékk séns því hún rann á vellinum.
46. mín
Leikur hafinn
Þá erum við byrjuð aftur í Eyjum. Vonandi fáum við mark í seinni hálfleikinn.
45. mín
Hálfleikur
Tíðindalítill fyrri hálfleikur þar sem fótboltinn hefur ekki verið uppi á marga fiska. Jasmín var sterk í liði Fylkis og þá einnig Þórdís í markinu sem greip vel inní.

Hjá ÍBV er fyrirliðinn Sóley Guðmundsdóttir búin að vera öflugust en lítið sem ekkert gerst sóknarlega hjá liðinu og gæti ég séð fyrir mér stöðubreytingar hjá liðinu í hálfleik.
45. mín
Sísí á skot úr aukaspyrnunni beint í vegginn, síðan fær hún boltann og skýtur aftur í varnarvegginn.
44. mín
Boltinn fer í handlegginn á Caragh Milligan rétt fyrir utan vítateiginn. Ingibjörg Lúcía fékk boltann og fékk að skjóta á markið en dómarinn gaf ÍBV líka aukaspyrnuna.
42. mín
Sóley gerði vel í teignum en skallinn hennar rétt framhjá.
42. mín
Slakt skot Rutar fer í varnarmann og þaðan afturfyrir. Hornspyrna sem Rut tekur.
40. mín
Frábær tilþrif hjá Katie úti við hliðarlínu. Klobbaði Sunnu frábærlega.
33. mín
Adrienne stoppar Thelmu sem var komin á ferðina inn í vítateig ÍBV.
32. mín
Thelma Lóa fær aukaspyrnu í stærsta pollinum í vellinum og virðist ekki sátt með það.
30. mín
Jasmín Erla verið kvenna sprækust í leiknum og átti nú gott skot en beint á Adelaide.
26. mín
Fínt skot hjá Sísí úr aukaspyrnunni en Þórdís gerir vel og á ekki í vandræðum með að grípa boltann.
26. mín
Sísí fær aukaspyrnu rétt fyrir utan teiginn og virðist ætla að taka hana sjálf.
25. mín
Fylkiskonur komist nokkrum sinnum upp hægri kantinn og gefið slakar fyrirgjafir, þurfa aðeins að setja meiri kraft í að mæta inn í teiginn þegar þær komast í þessar stöður.
24. mín
Sísi með skot utan að velli sem sigldi framhjá skeytunum fjær. Þórdís virtist alveg með þetta á hreinu í markinu og lét boltann því fara.
21. mín
Sóley hirti boltann af Rakel (sýndist mér) sem var sloppin í gegn. Hermann Hreiðarsson vildi fá aukaspyrnu og rautt spjald á Sóley en þar sem Rakel fór ekki í jörðina vildi Kristján, dómari leiksins, ekki dæma neitt.
20. mín
Skemmtileg barátta á milli Thelmu Lóu og Adrienne hér á kantinum en það er beint fyrir framan nefið á Hermanni sem virðist hafa mjög gaman að því.
19. mín
Þessi leikur mun vinnast á mikilli baráttu og Hermann veit það, hann hvetur sínar stelpur áfram endalaust á hliðarlínunni en Fylkisstelpurnar hafa ekki verið slakari aðilinn í dag.
14. mín
Ída í fínasta færi en mér sýndist það vera Sóley sem komst fyrir skot hennar inni í vítateignum.
14. mín
Rut Kristjánsdóttir er að spila gegn sínum gömlu félögum í dag en hún yfirgaf Fylki fyrir tímabilið.
13. mín
Boltinn aðeins komist af slæma svæðinu og þar er spiluð fínasta knattspyrna. Boltinn skýst eftir vellinum í bleytunni og stoppar ekki nema á einstaka svæðum á vellinum.
9. mín
Eitt svæði á vellinum er verst og er það við varamannaskýlin. Leikurinn hefur farið fram á því svæði nánast allan tímann. Þetta er eins og mýrarbolti.
5. mín
Sísí átti skalla af stuttu færi yfir mark Fylkis eftir hornspyrnu frá Rut.
1. mín
Clara Sigurðardóttir er frammi hjá Eyjakonum í dag í fjarveru Cloé og Kristínar en hún er einungis 15 ára gömul. Þess má til gamans geta að Ída Marín í Fylkisliðinu er líka á 15. aldursári.
1. mín
Leikur hafinn
ÍBV hefur leik í bleytunni í Vestmannaeyjum.
Fyrir leik
Daddi diskó kynnir liðin inn - óaðfinnanlegt.
Fyrir leik
Cloé Lacasse, besti leikmaður ÍBV, er ekki með í dag. Spurning hvort hún taki meiri þátt í Íslandsmótinu. Þá er Kristín Erna Sigurlásdóttir meidd og tekur ekki þátt í dag.
Fyrir leik
Kaitlyn Johnson er á bekknum hjá Fylki og vantar nokkra leikmenn í þeirra lið.
Fyrir leik
Fylkisstelpur eru fallnar og tefla fram mjög ungu liði í dag. Þær eru í 9. og næst neðsta sæti með 8 stig.
Fyrir leik
Eyjakonur eru í 4. sæti deildarinnar með 31 stig og urðu nýlega bikarmeistarar eftir sigur á Stjörnunni í úrslitum.
Fyrir leik
Veriði sæl og blessuð og velkominn á leik ÍBV og Fylkis með Fótbolta.net. Leikurinn er í 17. umferð Pepsi-deildar kvenna.
Byrjunarlið:
12. Þórdís Edda Hjartardóttir (m)
Tinna Bjarndís Bergþórsdóttir
Tinna Björk Birgisdóttir
Rakel Leósdóttir ('59)
5. Ída Marín Hermannsdóttir
6. Sunna Baldvinsdóttir
7. Thelma Lóa Hermannsdóttir
18. Jasmín Erla Ingadóttir
20. Caragh Milligan
21. Berglind Rós Ágústsdóttir (f)
28. Þóra Kristín Hreggviðsdóttir

Varamenn:
26. Ásta Vigdís Guðlaugsdóttir (m)
13. Kaitlyn Johnson ('59)
15. Lovísa Sólveig Erlingsdóttir
15. Ísold Kristín Rúnarsdóttir
20. Sunneva Helgadóttir
22. Sigrún Salka Hermannsdóttir

Liðsstjórn:
Hermann Hreiðarsson (Þ)
Sæunn Rós Ríkharðsdóttir
Björn Metúsalem Aðalsteinsson
Kristbjörg Helga Ingadóttir
Sigurður Þór Reynisson
Kolbrún Sól Ingólfsdóttir

Gul spjöld:

Rauð spjöld: