Spænski framherjinn Juan Manuel Ortiz verður með Grindvíkingum í Pepsi-deildinni næsta sumar en hann hefur skrifað undir nýjan samning við félagið.
Ortiz er þrítugur og skoraði fimm mörk í sautján leikjum í Inkasso-deildinni í sumar.
Grindvíkingar enduðu í öðru sæti og komust upp um deild.
Ortiz er þrítugur og skoraði fimm mörk í sautján leikjum í Inkasso-deildinni í sumar.
Grindvíkingar enduðu í öðru sæti og komust upp um deild.
Grindavík hefur sett stefnuna hátt fyrir næsta tímabil og þegar gefið það út að markmiðið sé að ná Evrópusæti.
Juan Manuel Ortiz Jimenez klár í Pepsi next season, skrifaði undir saming í gærkvöldi. 18 leikir, 5 mörk í Inkasso. #Grindavíkfc pic.twitter.com/z7qzOqq4PN
— Helgi Boga (@HelgiBoga) October 14, 2016
Athugasemdir