Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   þri 17. september 2013 09:51
Magnús Már Einarsson
Börkur Edvards: Fráleit ummæli
Edvard Börkur Edvardsson (til vinstri).
Edvard Börkur Edvardsson (til vinstri).
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Edvard Börkur Edvardsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, segist taka afsökunarbeiðni sem Jón Rúnar Halldórsson formaður FH og Lúðvík Arnarsson varaformaður sendu frá sér eftir leik liðanna í gærkvöldi.

Upp úr sauð eftir 3-3 jafntefli FH og Vals í gærkvöldi og nánast kom til handalögmála á milli Jóns Rúnars og Edvards Barkar og þurfti að ganga á milli þeirra.

Bæði Lúðvík og Jón Rúnar fullyrtu síðan við blaðamenn að Börkur hirði sjálfur peninga þegar hann selur leikmenn frá Val og stingi í eigin vasa.

Jón Rúnar og Lúðvík sendu frá sér afsökunarbeiðni í gærkvöldi og Börkur segir þessi ummæli þeirra fráleit.

,,Það voru fráleit ummæli látin falla í hita leiksins sem beðist var afsökunar á og þar með er málinu lokið frá minni hendi," sagði Börkur við Fótbolta.net í dag.

,,Þeir eru búnir að biðjast afsökunar og ég tek það gilt," bætti Börkur við en hann vildi ekki tjá sig frekar.

Sjá einnig:
Yfirlýsing FH: Hörmum ummæli og framkomu okkar í garð Barkar
Formenn FH: Börkur tekur prósentur af sölu leikmanna
Sauð uppúr í Kaplakrika - Formennirnir rifust og Davíð sá rautt
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner