Camavinga og Bastoni orðaðir við Liverpool - Ruben Neves á óskalista Man Utd - Framtíð Frank í óvissu
Lítur fyrst og fremst á sig sem Norðmann - „Mig langar bara að vinna"
Siggi Lár: Ætla ekki ræða einhver ákvæði í samningnum núna
Valdi Keflavík fram yfir ÍBV - „Þykir rosalega vænt um fólk í Eyjum“
Gummi Magg: Sá fyrir mér öðruvísi endi með uppeldisfélaginu
Fótbolta nördinn - Fótbolti.net vs Fylkir
„Myndi ekki vilja fara aftur upp á geðheilsuna“
17 ára á toppnum í Danmörku - „Finnst ég vera á sama getustigi ef ekki betri“
Ísak Andri tók fund með meisturunum - „Skoða alla möguleika núna í janúar“
Fótbolta nördinn - Draumaliðið vs KR
Kristall Máni: Hef alltaf vitað að fótboltahæfileikarnir hverfa ekki
Jóladagatalið: Stólar fullir af hálfvitum
Jóladagatalið: „Vonandi hefur Gummi Ben eitthvað lært af þessu“
Kominn í grænt eftir eitt tímabil í Svíþjóð - „Eftir það tók ég ákvörðun um að fara annað“
Ætlaði ekki að koma heim - „Þegar ég talaði við Óskar lá þetta fyrir“
Jóladagatalið: Kristján Óli eftir að hafa skorað ljótasta markið á ferlinum
Jóladagatalið: Auðunn Blöndal og Gaui Þórðar í geitungavandræðum
Ísak bendir á augljóst vandamál: Erum ekki nógu góðir þar
Jóladagatalið: Allir á þjóðhátið, það er skylda hjá mér!
Æfingaleikur: Aron Kristófer skoraði frá miðju gegn Leikni
Jóladagatalið: Þið vitið aldrei neitt um okkur
   fös 20. október 2017 17:00
Mist Rúnarsdóttir
Wiesbaden
Gugga: Man ekki eftir svona tilfinningu á fótboltavelli
Kvenaboltinn
Stórkostleg frammistaða Íslands. Gugga kýlir boltann í leiknum í  dag hér á þessari mynd.
Stórkostleg frammistaða Íslands. Gugga kýlir boltann í leiknum í dag hér á þessari mynd.
Mynd: Fotbolti.net - Anna Þonn
Guðbjörg Gunnarsdóttir, markvörður íslenska kvennalandsliðsins var skiljanlega létt, ljúf og kát eftir magnaðan sigur gegn Þýskalandi.

Lestu um leikinn: Þýskaland 2 -  3 Ísland

„Hvað varðar taktík og spilamennsku er þetta einn besti leikur sem við höfum spilað. Ísland hafði ekki skorað gegn Þýskalandi í 30 ár en í dag skorum við þrjú. Það er geggjað," segir Guðbjörg.

„Þegar Dagný kom okkur í 3-1... ég man ekki eftir svona tilfinningu á fótboltavelli."

„Það fór smá hrollur um mann þegar Þýskaland minnkaði muninn í 3-2. Þýsk lið eru dugleg að ná í stig í lokin. 'Fjandinn hafi það, það er ekki að fara að gerast!' hugsaði maður."

„Við njótum sigursins í nokkrar mínútur og svo er bara fókus á Tékkana," segir Guðbjörg en stelpurnar okkar mæta Tékklandi á þriðjudaginn.

Sjáðu viðtalið í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner