Fotbolti.net
@haflidibHafliði Breiðfjörð
Hafliði Breiðfjörð
Reykjavíkurmót karla
Egilshöll
Fjölnir
Fjölnir
0 - 5
Valur
Valur
0 - 125' Hafsteinn Briem0 - 257' Andri Fannar Stefánsson0 - 378' Haukur Páll Sigurðsson0 - 488' Guðmundur Þór Júlíusson 0 - 590' Indriði Áki Þorláksson
Myndir: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir
0. mín
Komiði sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Vals og Fjölnis í Reykjavíkurmóti karla, B riðli. Fyrir leikinn er ljóst að leikurinn skiptir engu máli því Fylkir og Þróttur eru komin uppúr riðlinum eftir 1-1 jafntefli rétt áðan. Valur er í þriðja sæti með eitt stig og Fjölnir stigalaust á botninum eftir að báðir leikir liðsins til þessa, sem báðir enduðu með jafntefli, hafa verið dæmdir þeim tapaðir 0-3 fyrir að nota ólöglegan leikmann.
0. mín
Valur keypti Kristinn Frey Sigurðsson frá Fjölni í vikunni og hann er á meðal varamanna hjá Val geng sínum gömlu félögum í kvöld.
1. mín
Leikurinn er hafinn.
2. mín
Valsmenn fengu aukaspyrnu á vítateigslínunni strax í upphafi leiksins. Rúnar Már S. Sigurjónsson tók spyrnuna en vippaði yfir markið.
Fjölnir
9. mín
Gult spjald

Kolbeinn Kristinsson

Kolbeinn fær áminningu fyrir að brjóta á Þóri Guðjónssyni út við hliðarlínu, nokkuð nærri miðlínu.
11. mín
Illlugi Gunnarsson með fast skot í stöng. Þarna skall hurð nærri hælum hjá Valsmönnum.
13. mín
Enn eru Fjölnismenn líklegri. Nú skaut Otto Marino Ingason í varnarmann Vals í teignum úr góðu færi. Boltinn fór í hönd Valsmannsins en aldrei hægt að dæma víti enda hafði hann höndina alveg upp við líkamann og stóð innan við metra frá Ottó þegar hann skaut.
Valur
25. mín
MAAAARK!

Hafsteinn Briem

Hafsteinn Briem kemur Valsmönnum yfir með skoti úr teignum.
Valur
33. mín
InnNesta Matarr Jobe
ÚtBrynjar Kristmundsson
Undarleg tíðindi. Brynjar Kristmundsson leikmaður Vals er borinn af velli vegna höfuðmeiðsla. Í hans stað kemur Matarr Jobe, kallaður Nesta. Þar kemur að þessum undarlega punkti í sögunni því Nesta gekk til liðs við Grindavík í vikunni og félagið sendi fjölmiðlum mynd af honum eftir undirskriftina. Nánar að því síðar!
Fjölnir
36. mín
Gult spjald

Guðmundur Karl Guðmundsson

Guðmundur Karl fær áminningu fyrir brot úti á miðjum velli.
45. mín
Kolbeinn Kárason skaut framhjá úr fínu færi.
45. mín
Þorvaldur Árnason dómari hefur flautað til hálfleiks. Leikurinn fór nokkrar mínútur framyfir venjulegan leiktíma vegna meiðsla Brynjars Kristmundsonar sem rotaðist í fyrri hálfleik en hefur nú rankað við sér með stórt glóðarauga.
45. mín
Þorvaldur Árnason dómari fer með gamanmál hér í hálfleik. Valsmenn voru í upphitun sem þeir eru farnir að gera í hálfleik og hann fór til Friðriks Ellerts sjúkraþjálfara og spurði hvort það væri í lagi að byrja leikinn eða hvort hann vildi halda áfram.
Valur
46. mín
InnÁsgeir Þór Magnússon (m)
ÚtSindri Snær Jensson
Fjölnir
46. mín
InnAron Sigurðarson
ÚtEgill Gautur Steingrímsson
Valur
46. mín
InnKristinn Freyr Sigurðsson
ÚtRúnar Már Sigurjónsson
Kristinn Freyr Sigiurðsson kemur inná í fyrsta leik í búningi Vals eftir að hafa leikið með Fjölni undanfarin ár. Í gríni var kallað Júdas inn á völlinn þegar hann gekk inná en hann hló bara að því.
Fjölnir
46. mín
InnViðar Ari Jónsson
ÚtBergsveinn Ólafsson
Valur
50. mín
Gult spjald

Halldór Kristinn Halldórsson

Halldór Kristinn braut á Bjarna Gunnarssyni út við hliðarlínu.
Valur
57. mín
MAAAARK!

Andri Fannar Stefánsson

Andri Fannar bætir öðru marki við fyrir Valsmenn. Hann fékk boltann í teiginn tók vel á móti honum og lagði í markið.
Valur
60. mín
InnArnar Sveinn Geirsson
ÚtKolbeinn Kárason
Fjölnir
66. mín
InnHjörleifur Þórðarson
ÚtOttó Marinó Ingason
Valur
70. mín
InnÚlfar Hrafn Pálsson
ÚtAndri Fannar Stefánsson
Valsmenn hafa of marga leikmenn á skýrslu og því var nafn Úlfars Hrafns ekki í upptalningunni hjá okkur, kerfið leyfir bara 18. En hann er kominn inná fyrir Andra Fannar Stefánsson.
Fjölnir
75. mín
InnHallgrímur Andri Jóhannsson
ÚtKolbeinn Kristinsson
Valur
77. mín
InnMatthías Guðmundsson
ÚtÁsgeir Þór Ingólfsson
Valur
78. mín
MAAAARK!

Haukur Páll Sigurðsson

Haukur Páll kemur Val í 3-0. Markið skoraði hann með skalla eftir hornspyrnu Kristins Freys sem nú er búinn að leggja upp mark gegn sínum gömlu félögum.
Fjölnir
79. mín
InnGuðfinnur Magnússon
ÚtJúlíus Orri Óskarsson
Júlíus Orri fer nú af velli. Hann tekur innköst eins og Rory Delap og stóð sig vel í dag. Það var þó hann sem varð þess valdur að Fjölnir endar Reykjavíkurmótið stigalaust því hann var skráður í Björninn í fyrstu tveimur leikjunum og því voru þeir dæmdir liðinu 0-3 tapaðir.
Fjölnir
84. mín
InnÁgúst Þór Ágústsson
ÚtIllugi Þór Gunnarsson
Valur
84. mín
InnIndriði Áki Þorláksson
ÚtHafsteinn Briem
Valur
88. mín
MAAAARK!

Guðmundur Þór Júlíusson

Þórir lék upp allan völlinn og fór framhjá öllum Fjölnismönnum, líka Marteini í markinu og lagði boltann svo í tómt markið.
Valur
90. mín
MAAAARK!

Indriði Áki Þorláksson

Indriði Áki, sonur Þorláks Árnasonar þjálfara U17 ára landsliðs kvenna og Íslandsmeistara Stjörnunnar í kvennaflokki skorar hér fimmta mark Vals.
90. mín
Leiknum er lokið með 5-0 sigri Vals sem endar mótið því með fjögur stig í þriðja sæti en Fjölnir í fjórða og neðsta sæti án stiga. Fylkir vann riðilinn og Þróttur endaði í 2. sæti en þau tvö fara í undanúrslit.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.