Fotbolti.net
Jóhann Ingi Hafþórsson
EM 2016
Stade Geoffroy-Guichard
10/10
Ísland
Ísland
1 - 1
Portúgal
Portúgal
0 - 131' NaniBirkir Bjarnason 51'1 - 1
Dómari: Cü­neyt Cak­ir (Tyrkland)
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Stórbrotið stig gegn Portúgal á fyrsta leik EM

Hvað réði úrslitum?

Portúgal voru töluvert betri aðilinn í fyrri hálfleik og áttu algjörlega skilið að vera marki yfir og vorum við í rauninni nokkuð heppnir að vera bara marki undir. Við byrjuðum seinni hálfleikinn mjög vel og náðum að jafna snemma í honum. Eftir það stóð vörnin hrikalega vel og hefðum við með smá heppni getað unnið leikinn.

Bestu leikmenn

1. Hannes Þór Halldórsson

Átti markvörslu í fyrri hálfleik sem var gjörsamlega einstök. Ótrúlega góð en þá varði hann frá Nani af stuttu færi en hann átti svo töluvert fleiri góðar vörlsur. Hann var rosalega öruggur í sínum aðgerðum og hefði leikurinn tapast með slakari markmann á milli stanganna.

2. Ragnar Sigurðsson

Tapaði engu á móti Ronaldo í leiknum og var þess fyrir utan gríðarlega öruggur. Varla einvígi sem hann fór í sem hann vann ekki. Á skilið að spila á hæsta leveli.

Atvikið

Jöfnunarmarkið hjá Birki Bjarnasyni er mark sem við munum muna eftir að eilífu. Kláraði mjög vel eftir flotta fyrirgjöf Jóa Berg.

Hvað þýða úrslitin?

Ísland er komið með stig á stórmóti. Ótrúlegt afrek.

Vondur dagur

Cristiano Ronaldo. Er oftast betri, klikkaði á dauðafæri í seinni hálfleik þegar hann var einn gegn Hannesi, nánast frá markteig og á meðan hann var lítið að hitta markið úr öðrum færum.

Dómarinn - 7

Tyrkinn var heilt yfir nokkuð góður. Sumt í hita leiksins sem manni fannst furðulegt en við kvörtum ekki í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.