Fotbolti.net
Brynja Dögg Sigurpálsdóttir
Brynja Dögg Sigurpálsdóttir
Pepsi-deild kvenna 2017
Alvogenvöllurinn
Kalt, smá vindur og rigning á köflum
KR
KR
0 - 1
Grindavík
Grindavík
Hrafnhildur Agnarsdóttir 20'0 - 134' Rilany Aguiar Da Silva
Dómari: Andri Vigfússon
Áhorfendur: 102
Myndir: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

SKÝRSLAN: KR enn án stiga

Hvað réði úrslitum?

Grindvíkingar byrjuðu leikinn mun betur og voru kraftmeiri framan af. Grindvíkingar voru í stanslausri sókn frá 1. mínútu. Útlendingarnir í liði Grindavíkur gerðu einnig gæfumuninn hér í dag og voru frábærar.

Bestu leikmenn

1. Rilany Da Silva

Var á allt öðru leveli heldur en aðrir leikmenn vallarins. Vörn KR var í stanslausum vandræðum með hana og hún skoraði einnig flott mark.

2. Carolina Mendes

Var leikstjórnandinn fram á við og bjó til flott færi fyrir liðsfélaga sína. Sömu sögu má segja um Thaisa sem átti frábæran leik en fór meidd útaf í hálfleik.

Atvikið

Rauða spjaldið á 20. mínútu var óheppilegt fyrir KR liðið, þrátt fyrir að brotið hafi sennilega komið í veg fyrir mark varð róðurinn óþarflega erfiður fyrir KR-liðið gegn spræku liði Grindavíkur. KR fær þó hrós fyrir seinni hálfleikinn þar sem þær komu mun sprækari til leiks.

Hvað þýða úrslitin?

2 sigrar úr 3 fyrstu leikjunum er frábær byrjun fyrir Grindavíkur liðið sem sitja nú í 5. sæti deildarinnar. KR stúlkur eru hinsvegar með 0 stig í 9. sæti.

Vondur dagur

Fremstu þrír leikmenn KR liðsins virtust ekki hafa mikinn áhuga á leiknum oft á tíðum og eru þetta leikmenn sem eiga að gera betur en 0 mörk í 3 leikjum. Einnig var dagurinn ekki góður fyrir Hrafnhildi í markinu sem gerði liðsfélögum sínum erfitt fyrir með því að vera rekin útaf eftir 20 mínútna leik.

Dómarinn - 7,5

Fær ekki háa einkunn á klukkunni. Byrjaði leikinn seint og þrátt fyrir miklar tafir í fyrri hálfleik var litlu bætt við. Annars ágætis leikur hjá Andra.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.