Fotbolti.net
Ármann Örn Guðbjörnsson
Pepsi-deild karla 2017
Ólafsvíkurvöllur
Mjög góðar. Blanka logn og heiðskýrt
Víkingur Ó.
Víkingur Ó.
0 - 3
Breiðablik
Breiðablik
0 - 113' Gísli Eyjólfsson0 - 240' Sveinn Aron Guðjohnsen 0 - 353' Aron Bjarnason
Dómari: Erlendur Eiríksson
Áhorfendur: 478

SKÝRSLAN: Öruggur sigur Blika í Ólafsvík

Hvað réði úrslitum?

Blikar voru bara hrikalega góðir í dag og Víkingar voru bara hrikalega lélegir

Bestu leikmenn

1. Gísli Eyjólfsson

Gísli leit bara út fyrir að vera á hærri klassa en allir aðrir leikmenn

2. Aron Bjarnason

Mark og stoðsending. Hrikalega hættulegur framávið í dag

Atvikið

Mark sumarsins. Gísli ákvað bara að negla og vá. Sá hitti boltann

Hvað þýða úrslitin?

Blikar lyfta sér uppfyrir Víkinga með sigrinum og eru komnir í ágæta stöðu. Nú þurfa þeir að vonast til þess að önnur lið misstíga sig smá og þá eru allar dyr opnar fyrir þá

Vondur dagur

Allt Víkingsliðið. Hrikalega lélegir í dag. Sendingarhlutfall liðsins er mögulega það lélegasta sem hefur verið í sumar hjá öllum liðum. Þeir geta mun betur en það verður erfitt ef Guðmundur Steinn og Nacho eru alvarlega meiddir

Dómarinn - 6

Rosalega kaflaskiptur hann Erlendur í dag. Hélt ekki eigin línu og dæmdi oft á skrítin brot. Þegar hann breytti um átt á broti og bætti svo við spjaldi eftir rúma mínútna bið. Það var mjög óþæginlegt að horfa uppá
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.