Fotbolti.net
@elvargeirElvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
4. deild karla - úrslitakeppni
Valsvöllur (KH leiðir 1-0 eftir fyrri leikinn)
KH
KH
1 - 1
Kórdrengir
Kórdrengir
0 - 14' Eyþór Helgi Birgisson Alexander Lúðvígsson 39'1 - 1
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson
Leik lokið!
KH FER UPP Í 3. DEILD (STAÐFEST) - Til hamingju með það! Kórdrengir áttu fantaflott fyrsta tímabil á Íslandsmótinu en verða að sætta sig við að vera áfram í 4. deildinni á næsta tímabili.
96. mín
ALLIR Í TEIGNUM í horninu og þvílíkur darraðadans og þvaga sem skapaðist. KH náði á endanum að hreinsa! Mikil taugaveiklun!
95. mín
Kórdrengir fá horn... síðasti séns.
93. mín
KH að klúðra hverju dauðafærinu á fætur öðru...
92. mín
KH nær að skora!!! Aron Skúli, en hann er dæmdur rangstæður! Þetta var kolröng ákvörðun aðstoðardómarans. KH-menn verða trylltir ef þetta atvik ræður úrslitum.
Kórdrengir
91. mín
InnSigurjón Daði Valdimarsson
ÚtAron Ellert Þorsteinsson
Við höfum siglt inn í uppbótartíma.
89. mín
Kórdrengir leggja alla áherslu á sóknina og með fjöldamarga menn frammi... það leikur allt á reiðiskjálfi hér á Hlíðarenda.
88. mín
KH í sókn 3 á móti tveimur úr skyndisókn en fer illa að ráði sínu.
87. mín
ROSALEG VARSLA!!!!! Steinar Logi í marki KH með RÁNDÝRA VÖRSLU! Kórdrengur með mjög góðan skalla og ég var nánast búinn að bóka mark en Steinar varði meistaralega.
KH
86. mín
Gult spjald

Halldór Rafn Halldórsson

KH
84. mín
InnMatthías Guðmundsson
ÚtGarðar Guðnason
Gamla Vals-hetjan mætir inn. Er þjálfari 2. flokks Vals í dag.
83. mín
Eitt mark frá Kórdrengjum og liðið er á leiðinni upp á útivallamörkum... KH er á leið upp eins og staðan er. Spenna, spenna, spenna.
KH
82. mín
Gult spjald

Kristján Einar Auðunsson

Tók Kórdreng niður með glímutaki á hægri kantinum.
Kórdrengir
81. mín
InnMagnús Ársælsson
ÚtBergur Garðar Bergsson Sandholt
KH
79. mín
InnHalldór Rafn Halldórsson
ÚtSveinn Ingi Einarsson
78. mín
SKALLI Í SLÁ OG YFIR!!! Bergur Garðar í Kórdrengjum skallaði í slána. Þarna munaði litlu.
78. mín
Kórdrengir gera tilkall til þess að fá víti en ekkert dæmt.
77. mín
Aron Skúli nálægt því að ná til boltans eftir fyrirgjöf! Var í hörkufæri. Þessi seinni hálfleikur hefur ekki verið mjög mikil skemmtan...
Kórdrengir
73. mín
Gult spjald

Friðrik Elí Bernhardsson

71. mín
Þung sókn KH endar með því að Sveinn Ingi á skot hátt yfir.
Kórdrengir
69. mín
Gult spjald

Viktor Unnar Illugason

Þá kom fyrsta gula spjaldið... væn tækling á miðjum vellinum. Viktor getur ekki mótmælt þessu.
Kórdrengir
65. mín
InnFrancis Jeremy Aclipen
ÚtJón Brynjar Jónsson
KH
63. mín
InnAron Skúli Brynjarsson
ÚtEllert Finnbogi Eiríksson
59. mín
VÁ! Kórdrengir með aukaspyrnu sem flýgur inn í teiginn og endar svo í fjærhorninu! Maaaark! Nei! Flaggið komið á loft. Aðstoðardómarinn var búinn að flagga rangstöðu.
57. mín
Alexander Lúðvígsson með hættulegt fyrirgjafarskot sem endaði ofan á þaknetinu.
53. mín
Kórdrengir eru heldur betur að ógna núna!
51. mín
Eyþór Helgi skallar rétt framhjá eftir hornspyrnu.
50. mín
Ásgeir Frank með fína skottilraun úr aukaspyrnu en Steinar Logi ver í horn.
48. mín
Alexander Lúðvígsson í dauðafæri, reyndi að vippa yfir markvörð Kórdrengja en það gekk ekki vel.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
45. mín
KH leiðir einvígið samtals 2-1... liðið var ívið betra en Kórdrengirnir í þessum fyrri hálfleik.
42. mín
KH hótar öðru marki en nær ekki að hitta á rammann.
KH
39. mín
MAAAARK!

Alexander Lúðvígsson (stoðsending: Kristján Einar Auðunsson )

KH HEFUR SKORAÐ!!! Fyrirgjöf á pönnuna á Alexander og boltinn endar niðri í báhorninu. Frábær skalli.
37. mín
KH í rosalegum vandræðum með að halda boltanum þessar mínútur.
31. mín
Aron Ellert Þorsteinsson setur boltann rétt framhjá eftir hornspyrnu Kórdrengja.
28. mín
Ellert í liði KH fær hörkufæri en skot hans laust. Nóg af færum sem Ellert er að fá.
27. mín
Kórdrengir fengu aukaspyrnu á miðjum vellinum nánast og Ásgeir Frank ákvað að reyna skot. Yfir fór hann. Um að gera að reyna.
21. mín
Ellert Finnbogi með skot rétt framhjá!
15. mín
Aftur hætta við mark Kórdrengja en Gunnar Geir í rammanum ver vel.
12. mín
KH nálægt því að skora! Kristófer Bæring í vörn Kórdrengja rennur og Garðar Guðnason á fyrirgjöf. Ellert Finnbogi Eiríksson með skalla rétt framhjá markinu!
10. mín
Eftir fyrstu tíu mínúturnar er aðeins ein marktilraun, og hún skóp mark.
Kórdrengir
4. mín
MAAAARK!

Eyþór Helgi Birgisson (stoðsending: Bergur Garðar Bergsson Sandholt)

KÓRDRENGIR HAFA JAFNAÐ ÞETTA EINVÍGI! Þetta var eins einfalt og hægt er. KH steinsofandi, stunga á Eyþór Helga sem hristi af sér varnarmann og kláraði laglega.
1. mín
Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson hefur flautað leikinn á. KH hóf leikinn.
Kórdrengir
0. mín
InnJón Brynjar Jónsson
ÚtMagnús Már Lúðvíksson
0. mín
Dramatísk tónlist í græjunum. Liðin eru mætt út á völl. KH að sjálfsögðu í Valslitunum. Kórdrengir eru svartklæddir.
0. mín
Hamingjuóskir til Augnabliks sem var að komast upp með 3-0 sigri (samtals 5-2) gegn Álftanesi. Hjörvar Hermanns, Kári Ársæls og Hjörtur Hjartar skoruðu. Nú er bara spurning hvort KH eða Kórdrengir fylgja Augnablikum.
0. mín
Hvað sagði Magnús Valur Böðvarsson (Maggi Bö) fyrir einvígi KH og Kórdrengja? ,,Einvígið er gríðarlega áhugavert, mér hefur fundist KH vera með best spilandi liðið í deildinni, sterkt á nánast öllum vígstöðum en ég hef séð veikleika í varnarleiknum. Ég hef líka séð mikið af leikjum með Kórdrengjum og séð ákveðna veikleika sem ég bjóst við að mundi sjást betur í úrslitakeppninni. Ég bjóst við að þeir myndu ekki ráða við slíkt tempó og hraða sóknarlínur eins og ÍH hafði en það kom mér gríðarlega óvart hversu vel þeir náðu að tækla hraðann sem ÍH hafði uppá að bjóða. Ég veit að þeir eru smá laskaðir, menn að púsla sig saman og leikjaálagið í úrslitakeppninni að fara segja til sín. Sóknarlega eru þeir hrikalega sterkir og ég ætla gerast svo djarfur og spá nýliðunum sigri í þessi einvígi. Hinsvegar gæti það alveg gerst að þeir mæti ofjörlum sínum.\"
0. mín
Með menn sem hafa villst af leið Davíð Smári er þjálfari Kórdrengja sem eru á sínu fyrsta tímabili á Íslandsmóti. Davíð var nýlega í viðtali við Fótbolta.net þar sem hann sagði meðal annars frá félaginu. ,,Kórdrengir var stofnað árið 2007 og eftir titla í utandeildinni næstum ár hvert var ákveðið að fara í 4. deildina. Liðstjórn liðsins og hryggur er sá sami og frá upphafi. Lykillinn að liðinu er blandan og samsetningin innan vallar sem utan. Í Kórdrengjum eru ungir og efnilegir leikmenn sem og reynsluboltar sem miðla því sem þeir hafa lært á löngum ferli. Í liðinu eru líka menn sem hafa villst af leið í lífinu en fengið tækifæri til að snúa við blaðinu. Fyrir það erum við þakklátir og sýnir þetta hversu íþróttir eru mikilvægar fyrir marga aðila.\"
0. mín
KH stendur fyrir Knattspyrnufélagið Hlíðarendi og er liðið tátengt Val, enda spilar liðið á Valsvelli og þar fer leikurinn fram í kvöld. Meðal leikmanna KH eru nokkrir ungir leikmenn úr 2. flokki Vals.
0. mín
Annað liðið fer upp Góða kvöldið! Hér verður bein textalýsing frá leik KH og Kórdrengja í úrslitakeppni 4. deildar. Þetta er seinni undanúrslitaleikur þessara liða og annað þessara liða kemst upp í 3. deildina í kvöld. KH vann fyrri leikinn 1-0 þar sem Aron Skúli Brynjarsson skoraði.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.