Fotbolti.net
Baldvin Már Borgarsson
Baldvin Már Borgarsson
Fótbolta.net mótið - A-deild
Fífan
Breiðablik
Breiðablik
2 - 0
Stjarnan
Stjarnan
16' Hilmar Árni Halldórsson (misnotað víti)Thomas Mikkelsen (víti) 36'1 - 0Brynjólfur Darri Willumsson 82'2 - 0
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson

SKÝRSLAN: Blikar tryggðu titilinn í Fífunni

Hvað réði úrslitum?

Leikurinn var svolítið í höndum Stjörnumanna, þeir klúðruðu víti og fleiri góðum sénsum en þegar Blikar skoruðu þá snérist leikurinn við og Blikar sýndu gæði sín í að klára hann.

Bestu leikmenn

1. Gulli Gull (Breiðablik)

Gulli varði víti, frákastið, geggjað skot frá Danna Lax og hélt hreinu.

2. Willum Þór Willumsson (Breiðablik)

Willum sýndi gæðin sem hann býr yfir, hann stjórnaði tempoinu í leiknum eftir að Blikar komust yfir, átti nokkrar frábærar sendingar, virkilega útsjónarsamur og klókur leikmaður.

Atvikið

Markvarsla Gulla í vítinu frá Hilmari og svo langatöngin í fylgingunni frá Þorsteini sem kom boltanum í stöngina. Virkilega mikivægt og Blikar komust yfir stuttu seinna.

Hvað þýða úrslitin?

Blikar eru sigurvegarar Fótbolta.net mótsins í fjórða skipti! - Mest allra liða.

Vondur dagur

Hinn magnaði Hilmar Árni fær þennan titil, klúðraði víti, klúðraði tveim flottum skotfærum í opnum leik, átti svosem fína aukaspyrnu sem var vel varin en aðrir boltar frá honum úr aukaspyrnum ekki jafn hættulegir og þeir voru síðasta sumar. Var ekki alveg upp á sitt besta í dag.

Dómarinn - 6

Ívar vinur minn fær sexu, dæmdi leikinn þokkalega en hefði átt að dæma annað víti fyrir Blika og svo hefði Elfar Freyr sennilega fokið útaf í Íslandsmótsleik en Ívar gaf honum smá pre-season afslátt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.