Fotbolti.net
@MistRunarsdottiMist Rúnarsdóttir
Mist Rúnarsdóttir
Valur
Valur
Pepsi-Max deild kvenna
Origo völlurinn
5 - 2
Þór/KA
Þór/​KA
Hlín Eiríksdóttir 5'1 - 01 - 125' Karen María Sigurgeirsdóttir 1 - 233' Andrea Mist PálsdóttirFanndís Friðriksdóttir 47'2 - 2Arna Sif Ásgrímsdóttir (sjm) 53'3 - 2Hlín Eiríksdóttir 69'4 - 2Hlín Eiríksdóttir 85'5 - 2
Dómari: Gunnþór Steinar Jónsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Markaregn og Valssigur í stórleik fyrstu umferðar

Hvað réði úrslitum?

Góður síðari hálfleikur skóp sigur Valskvenna. Heimakonur höfðu byrjað fyrri hálfleikinn vel og átt góðar 20 mínútur áður en gestirnir komust í gang og voru mjög öflugar síðari hluta fyrri hálfleiks. Eitthvað hefur Pétur þjálfari sagt við sína leikmenn í leikhléi því Valsliðið var framúrskarandi í síðari hálfleik og spilaði glimrandi flottan sóknarbolta. Lokatölur 5-2 í stórskemmtilegum leik þar sem mörk beggja liða hefðu auðveldlega getað orðið fleiri.

Bestu leikmenn

1. Hlín Eiríksdóttir

Hlín var frábær í dag. Kraftmikil og áræðin á hægri kantinum og skoraði sína aðra þrennu í efstu deild. Fyrstu þrennu Pepsi Max-deildarinnar í ár.

2. Elín Metta Jensen

Elín Metta var síógnandi í fremstu víglínu Vals. Hún er ótrúlega lunkin og skapaði fullt af hættulegum mómentum fyrir Valskonur.

Atvikið

Hlín skallar fyrirgjöf Margrétar Láru í netið. Skorar fimmta mark Vals, þriðja mark sitt og setur fyrstu þrennu Pepsi Max-deildarinnar í sumar.

Hvað þýða úrslitin?

Valskonur byrja mótið með stæl gegn silfurliði síðasta tímabils. Þær eru með þrjú mörk í plús og eru því í toppsætinu eftir þessa fyrstu umferð.

Vondur dagur

Síðari hálfleikurinn var skelfilegur fyrir flesta leikmenn Þórs/KA og bæði erfitt og ósanngjarnt að taka einhverja eina fyrir. Hópurinn tekur þetta á sig.

Dómarinn - 7,5

Það verða alltaf einhver vafaatriði í svona stórleikjum en tríóið stóð sig vel og var með aðalatriðin á hreinu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.