SKÝRSLAN: Aron Bjarna slökkti í Stjörnunni
Hvað réði úrslitum?
Skiptingin þegar Aron Bjarnason kom inná fyrir Andra Rafn Yeoman. Gjörbreytti leiknum, skoraði frábært mark og lagði svo upp þriðja markið til að kóróna leik sinn.
Bestu leikmenn
1. Aron Bjarnason
Aron kom inná með þvílíkum krafti, skoraði glæsilegt mark og lagði einnig upp markið á Alexander. Stjörnumenn réðu ekkert við hann.
2. Guðjón Pétur Lýðsson
Rosalegur kraftur í Gauja síðasta hálftímann þegar Blikar tóku yfir leikinn. Átti magnaðan sprett sem endaði með að Baldur braut á honum og þá smurði hann aukaspyrnunni bara í bláhornið.
Atvikið
Markið hjá Aroni. Stjarnan 1-0 yfir og Aron með boltann úti við hornfánann og smyr honum í skeytin fjær, snéri leiknum við.
Hvað þýða úrslitin?
Breiðablik er komið á toppinn í bili með 19 stig, tveimur stigum meira en KR sem á leik til góða.
Stjarnan er með 12 stig í 7.sætinu.
Stjarnan er með 12 stig í 7.sætinu.
Vondur dagur
Set þetta á Rúnar Pál, eftir að Stjarnan náðu forrystunni þá tók hann tvo hættulegustu leikmenn sína í leiknum útaf og fékk það rækilega í bakið. Stjarnan fór varla inn í teig Blika eftir að Ævar og Sölvi fóru útaf.
Dómarinn - 8
Þorvaldur dæmdi þennan leik vel, var með góð tök á leiknum og dæmdi ekki neina vitlausa dóma sem ég tók eftir.



