
Breiðablik
0
0
Þór/KA

01.08.2019 - 18:00
Kópavogsvöllur
Pepsi-Max deild kvenna
Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson
Maður leiksins: Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir
Kópavogsvöllur
Pepsi-Max deild kvenna
Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson
Maður leiksins: Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir
Byrjunarlið:
Sonný Lára Þráinsdóttir
7. Agla María Albertsdóttir
8. Heiðdís Lillýardóttir
9. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
10. Berglind Björg Þorvaldsdóttir
13. Ásta Eir Árnadóttir (f)
16. Alexandra Jóhannsdóttir
20. Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir
('90)

21. Hildur Antonsdóttir
('84)

24. Hildur Þóra Hákonardóttir
27. Selma Sól Magnúsdóttir

Varamenn:
26. Ásta Vigdís Guðlaugsdóttir (m)
2. Sóley María Steinarsdóttir
4. Bergþóra Sól Ásmundsdóttir
('84)

6. Isabella Eva Aradóttir
6. Þórhildur Þórhallsdóttir
14. Berglind Baldursdóttir
('90)

19. Esther Rós Arnarsdóttir
Liðsstjórn:
Þorsteinn H Halldórsson (Þ)
Ragna Björg Einarsdóttir
Ólafur Pétursson
Jóhanna Kristbjörg Einarsdóttir
Særún Jónsdóttir
Aron Már Björnsson
Tinna Harðardóttir
Gul spjöld:
Selma Sól Magnúsdóttir ('93)
Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þá er þessu lokið. Blikastelpur ná ekki að koma inn marki og missa tvo mikilvæg stig í baráttunni við Val um Íslandsmeistaratitilinn.
Skýrsla og viðtöl síðar í kvöld
Skýrsla og viðtöl síðar í kvöld
91. mín
Alexandra Jóhanns í tveimur dauðafærum í röð. Ver stórkostlega frá henni eftir gott skot innan teigs og svo á Alexandra skalla rétt yfir
90. mín

Inn:Berglind Baldursdóttir (Breiðablik)
Út:Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir (Breiðablik)
86. mín
Ásta eir nú með skot langt fyrir utan teig og það er langt framhjá markinu. Blikar þurfa að gera miklu betur ef þær vilja taka 3 stig
83. mín
Þá tekur Agla við hinum megin og prjónar sig í gegnum vörnina en skotið er slakt og beint á Bryndísi í markinu
82. mín
Þarna munaði litlu hjá Þór/KA. Sonný missir ævintýralega af boltanum en nær þó til hans fyrir rest.
78. mín
Hildur Antons á nú skot fyrir blika en Bryndís á ekki í vandræðum og handsamar boltann
75. mín
Blikar fá hér aukaspyrnu á hættulegum stað. Boltinn berst á Berglindi sem tekur skot en það fer í varnarmann og Þór/KA hreinsa.
72. mín
ÞVÍLÍKT SKOT HJÁ KARÓLÍNU!! Karólína fær boltann á vítateigslínunni og ætlar að smyrja honum í Samúel en Bryndís ver FRÁBÆRLEGA. Klárlega ein af vörslum sumarsins
70. mín
Dauðafæri hjá Blikum. Agla átti skot sem fór rétt framhjá. Það héldu allir á vellinum að þessi væri inni.
69. mín
Nú eru Þór/KA byrjaðar að færa sig aðeins framar á völlinn og reynir Andrea Mist skot rétt fyrir utan teig. Sonný á þó ekki í vandræðum með þetta og grípur boltann
62. mín
Það er mjög lítið að gerast þessa stundina. Blikar að reyna að sækja en ekki að skapa sér neitt. Þær þurfa aðeins að fara að gefa í ef þær vilja fá stigin 3
56. mín
Berglind nær loksins að koma boltanum í markið eftir hornið sem Áslaug Munda tók en markið er dæmt af vegna rangstöðu. Þetta var mjög tæpt.
52. mín
Jæja Blikar fá enn eitt hornið. Það fyrsta í seinni hálfleik. Ágætis bolti fyrir og eftir smá klafs í teignum ná Þór/KA að hreinsa boltann í burtu
48. mín
Karólína í ágætisfæri eftir góðan sprett frá Áslaugu Mundu.Karólína skýtur þó í varnarmann svo það verður ekkert úr þessu
46. mín
Þá er þetta komið aftur af stað. Nú byrja Þór/KA með boltann og sækja í átt að Fífunni
45. mín
Hálfleikur
0-0 í fyrri hálfleik þegar Egill flautar þetta af. Blikar sóttu án afláts allan fyrri hálfleikinn en náðu ekki að koma knettinum í netið.
43. mín
Ekkert að gerast þessa stundina, Blikar halda bara áfram að sækja án þess að skapa sér mikið af færum. Fáum við mark fyrir hálfleik?
39. mín
Annað tækifæri hjá Blikum. Ásta með fyrirgjöf inn í teig og Agla nær skallanum en boltinn fer rétt framhjá!
38. mín
DAUÐAFÆRI hjá Breiðablik. Blikar taka hornspyrnuna og Hildur skallar boltann sem virðist vera á leiðinni inn en þá tekst Berglindi að vera fyrir og Þór/KA nær að hreinsa
34. mín
Karólína á ágætissprett á hægri kantinum fyrir Blika, sem endar með skoti sem Bryndís ver
31. mín
Þór/KA færa sig aðeins framar á völlinn og sækja upp hægri kantinn og ná sendingu á Þórdísi Hrönn sem tekur hann utanfótar og skýtur yfir markið
29. mín
Blikar aftur komnar í sókn sem endar þannig að Selma Sól fær boltann á vítateigslínunni en skýtur hátt hátt yfir. Lélegt skot.
26. mín
DAUÐAFÆRI HJÁ ÞÓR/KA EFTIR HORNSPYRNUNA. Sonný stekkur upp og gerir sig líklega til að grípa boltann en missir af honum og þá hefst mikið klafs í teignum, en þær svartklæddu reyna eins og þær geta að koma boltanum inn en Blikastelpurnar eru fyrir og ná loks að hreinsa.
23. mín
Blikastúlkur sækja og sækja þessa stundina. Eru samt ekki að ná að opna Þór/KA neitt sérstaklega, hafa ekki fengið mikið af opnum marktækifærum. Þór/KA liggja mjög aftarlega
12. mín
Nú á Karólína fína fyrirgjöf inn í teig en Berglind Björg á lélégan skalla sem Bryndís á ekki í neinum vandræðum með
12. mín
AGLA MARÍA MEÐ SKOT RÉTT YFIR. Hún fær bara að snúa sér inni í teig Þór/KA og á ágætis skot en það er rétt yfir markið
11. mín
Þór/KA fær hér aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi Blika. Þórdís Hrönn tekur en blikavörnin hreinsar.
7. mín
Blikar hafa verið að sækja stöðugt síðustu mínúturnar án þess þó að skapa sér hættuleg færi. Hef ekkert getað sagt nánar frá þessum færum þar sem það er netlaust í Kópavoginum. Vonandi lagast það sem fyrst.
3. mín
Blikar fá hér horn sem Agla tekur. Hún tekur hornið stutt, fær boltann aftur og skýtur þá yfir markið
1. mín
Blikar byrja þetta að krafti og fá dauðafæri þegar Bryndís missir af boltanum eftir fyrirgjöf inn í teig en nær á ótrúlegan hátt að stökkva á boltann áður en sóknarmenn blika komast í hann.
1. mín
Leikur hafinn
Þá er þetta farið af stað og Blikar byrja með boltann og sækja í átt að Fífunni.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn og þau má sjá hér til hliðanna!
Þór/KA gerir eina breytingu frá síðasta deildarleik en Magðalena Ólafsdóttir kemur inn fyrir Agnesi Birtu Stefánsdóttur.
Blikar gera líka eina breytingu frá síðasta leik þar sem Áslaug Munda kemur inn fyrir Andreu Rán. Það þýðir þá að Selma Sól spilar líklega á miðjunni í dag.
Þór/KA gerir eina breytingu frá síðasta deildarleik en Magðalena Ólafsdóttir kemur inn fyrir Agnesi Birtu Stefánsdóttur.
Blikar gera líka eina breytingu frá síðasta leik þar sem Áslaug Munda kemur inn fyrir Andreu Rán. Það þýðir þá að Selma Sól spilar líklega á miðjunni í dag.
Fyrir leik
Markahæstu menn Breiðabliks eru Berglind Björg og Agla María en þær eru báðar komnar með 11 mörk í deildinni í sumar. Þær eru markahæstar í deildinni ásamt Elínu Mettu, Hlín Eiríksdóttur og Chloé Lacasse.
Sandra Mayor er markahæst í liði Þór/KA með 10 stykki.
Sandra Mayor er markahæst í liði Þór/KA með 10 stykki.
Fyrir leik
Fyrri leikur liðanna var spilaður 21. maí en þar sigruðu Blikar örugglega 4-1. Hildur Antons, Agla María, Berglind Björg og Áslaug Munda skoruðu mörk þeirra grænklæddu en Sandra Mayor skoraði eina mark Þór/KA.
Fyrir leik
Þór/KA situr í 3.sæti deildarinnar með 20 stig, einu stigi meira en Selfoss sem eru í 4.sætinu.
Þór/KA spiluðu gegn ÍBV í síðasta leik og unnu góðan 5-1 sigur og komust aftur á sigurbraut eftir þriggja leikja taphrinu.
Akureyrarliðið hefur verið án mexíkóana tveggja, Biancu Sierra og Söndru Mayor í síðustu tveimur leikjum en þær eru í landsliðsverkefni með Mexíkó. Þetta er síðasti leikur Þór/KA án þeirra í bili.
Þór/KA spiluðu gegn ÍBV í síðasta leik og unnu góðan 5-1 sigur og komust aftur á sigurbraut eftir þriggja leikja taphrinu.
Akureyrarliðið hefur verið án mexíkóana tveggja, Biancu Sierra og Söndru Mayor í síðustu tveimur leikjum en þær eru í landsliðsverkefni með Mexíkó. Þetta er síðasti leikur Þór/KA án þeirra í bili.
Fyrir leik
Valur og Breiðablik hafa verið í algjörum sérflokki í sumar og munu líklega berjast um titilinn allt til síðasta leiks. En bæði liðin eru enn taplaus í deildinni.
Breiðablik er sem stendur í 2. sæti deildarinnar, með jafn mörg stig og Valur (34 stig) en lakari markatölu. Með sigri komast því blikastelpur á toppinn!
Blikar spiluðu síðast gegn Keflavík þar sem þær sigruðu 5:2.
Breiðablik er sem stendur í 2. sæti deildarinnar, með jafn mörg stig og Valur (34 stig) en lakari markatölu. Með sigri komast því blikastelpur á toppinn!
Blikar spiluðu síðast gegn Keflavík þar sem þær sigruðu 5:2.
Byrjunarlið:
Lára Einarsdóttir
Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir
8. Andrea Mist Pálsdóttir
9. Karen María Sigurgeirsdóttir
10. Lára Kristín Pedersen
16. Jakobína Hjörvarsdóttir
('89)

17. María Catharina Ólafsd. Gros
18. Magðalena Ólafsdóttir
('62)

22. Hulda Ósk Jónsdóttir
24. Hulda Björg Hannesdóttir
27. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir
Varamenn:
1. Harpa Jóhannsdóttir (m)
25. Helena Jónsdóttir (m)
2. Rut Matthíasdóttir
3. Anna Brynja Agnarsdóttir
11. Arna Sif Ásgrímsdóttir
('89)

22. Eygló Erna Kristjánsdóttir
25. Heiða Ragney Viðarsdóttir
26. Ísfold Marý Sigtryggsdóttir
('62)

Liðsstjórn:
Halldór Jón Sigurðsson (Þ)
Andri Hjörvar Albertsson (Þ)
Saga Líf Sigurðardóttir
Ingibjörg Gyða Júlíusdóttir
Einar Logi Benediktsson
Haraldur Ingólfsson
Gul spjöld:
Rauð spjöld: