Ingibjörg er komin langt út úr markinu og á fyrirgjöf sem að Guðmunda tekur á móti en fyrsta snertingin svíkur hana og Kelsey handsamar boltann.
Selfoss nálgast óðfluga.
Guðmunda sleppur ein í gegn og er ein á móti Kelsey en á einhvern ÓTRÚLEGAN hátt nær Kelsey að verja skotið í horn!
Ég á ekki til aukatekið orð. Þvílík varslaaaaaa!
Þetta verða æsilegar fimmtán mínútur.
Korter eftir. Er fyrsti bikarmeistaratitill Selfoss handan við hornið?
Ekki alvarlegt brot en Gumma gerir vel í því að sækja þetta. STÓRHÆTTULEGT FÆRI!
Þóra Jónsdóttir
MAAAAAAAAAAAAAAAARK!!ÞÓRA JÓNSDÓTTIR ER AÐ KOMA SELFYSSINGUM YFIR Í FRAMLENGINGUNNI, VARAMAÐURINN SJÁLFUR!
Grace Rapp á fyrirgjöf sem að Laufey Björnsdóttir skallar út úr vítateignum, þar er Þóra Jónsdóttir mætt, hún athafnar sig og lætur vaða og boltinn syngur í netinu!
Er Þóra hetja Selfyssinga í kvöld?
Fín fyrirgjafarstaða. Grace Maher spyrnir en Selfyssingar skalla frá.
Selfyssingar heimta gult spjald .
Annað skipti sem að Sandra á slappt skot í flottu færi.
alltlæ - ekki gottt
Egill Arnar hefur flautað til loka venjulegs leiktíma!
Gloria dansar með boltann fyrir utan teig Selfoss, sendir boltann á Grace sem að skýtur yfir.
Anna María með geggjaða tæklingu á Söndru. KR-ingar heimta vítaspyrnu en þetta var alltaf bara góð tækling.
Þremur mínútum bætt við.
Nálægt því að tryggja KR titilinn þegar hún kemst hér inn fyrir vörn Selfoss en skýtur rétt framhjá!
DAAAAAUÐAFÆRI!
Sleppur hér ein inn fyrir vörn KR en lætur Ingibjörgu verja frá sér úr DAUÐAFÆRI! Þarna hefði Hólmfríður mátt gera betur og hún veit það!
Grace Rapp
Grace Rapp með fótinn alltof hátt upp og beint í höfuðið á Ingunni Haraldsdóttur. Ingunn hristir þetta af sér.Þetta var myndarleg sókn.
Magdalena Anna Reimus er tekin útaf og er alls ekki sátt við það. Hrafnhildur kemur inn og fer á vinstri kantinn.
Alfreð og Óttar ræða hér málin á hliðarlínunni. Spurning hvort að það fari að styttast í skiptingu.
Ef ég mætti velja mér einn jaxl til að berjast við endakall à erfiðum tölvuleik þá væri það þessi drottning. Yfirburðartalent og risa baráttuhjarta #FotboltiNet pic.twitter.com/GLqGTYN0PL
— Maggi Peran (@maggiperan) August 17, 2019
Þarna hefði Magdalena átt að gera betur.
Eru mun líklegri en KR til þess að ná forystunni eins og staðan er núna.
Geggjuð spyrna frá Önnu, beint á kollinn á Hólmfríði sem að skallar á markið og Ingbjörg þarf að hafa sig alla við í markinu! Nær að verja boltann í horn.
Selfyssingar fá aukaspyrnu á flottum stað, fyrirgjafarfæri fyrir Önnu Maríu.
Frábær stemmning á Laugardalsvellinum! 1-1 à hálfleik og bikarinn á leið yfir brúna! #selfossdottir #Mjolkurbikarinn #gaypride2019 pic.twitter.com/rrOrxdI975
— Guðmundur Karl Sigurdórsson (@dullari) August 17, 2019
Kemur með fyrirgjöf meðfram jörðinni inn á teig en Katrín Ómarsdóttir sér við þessu og kemur boltanum burt.
Þá er síðari hálfleikur kominn af stað og nú eru það KR-ingar sem að hefja leik með boltann!
Sturlað jöfnunarmark frá @Holmfridur26! Þetta er leikur #fotboltinet
— Sigfús Örn (@sigfusorn) August 17, 2019
Þetta verður alvöru síðari hálfleikur, sjáumst þá!
Hólmfríður leikur sér hér með boltann inni í teig KR. Fer framhjá 2-3 varnarmönnum áður en hún á skot á markið en boltinn í hendur Ingibjargar.
KR fær aðra hornspyrnu, nú hinum megin frá. Selfyssingar skalla boltann burt.
Grace Maher tekur spyrnuna sem er ansi innarlega og Kelsey Wys grípur boltann áður en að hann endar hreinlega í netinu.
Fjórum mínútum bætt við.
Þarf þó ekki að fara inn á völlinn þar sem að Hólmfríður stendur upp.
Selfyssingar verið mun sterkari eftir að hafa jafnað metin.
HólmfrÃður Magnúsdóttir -> Pele #SELKR #Selfoss #SelfossFC #Mjólkurbikarinn
— Orri Ãrar Smárason (@orriyrar) August 17, 2019
Selfyssingar svo nálægt því að ná forystunni hér einungis tveimur mínútum eftir að þær jöfnuðu leikinn. Hólmfríður klobbar leikmann KR og á geggjaða sendingu á Barbáru inn fyrir vörn KR en Barbára setur boltann beint á Ingibjörgu!
Illa farið með ansi gott færi.
Hólmfríður Magnúsdóttir
MAAAAAAAAAARK!!Selfyssingar jafna leikinn og HVER ÖNNUR????
Þórunn Helga tapar boltanum á miðsvæðinu og Fríða tekur á rás upp völlinn, keyrir framhjá fjölmörgum varnarmönnum KR áður en hún setur boltann í SLÁNNA og þaðan inn! Geggjað mark frá Fríðu og hér er allt orðið jafnt!
Kristín Erla Johnson kemur inná í hennar stað.
Þjálfararnir nýta tækifærið og fara yfir málin með sínum stelpum.
Ingibjörg vel á verði í marki KR, kemur út og handsamar boltann.
Hefur nokkrum sinnum hrist hausinn og er að punkta einhverja hluti hjá sér.
Grace aðeins of sein á svæðið og að lokum ná KR-ingar að negla boltanum burt. Besta færi Selfoss í leiknum, ef færi má kalla.
Einhver skrekkur í Selfyssingum ennþá.
Gloria Douglas
MAAAAAAARK!KR-ingar hafa tekið forystuna og það er Gloria Douglas með geggjað einstaklingsframtak!
Boltinn berst á hana fyrir utan teig eftir hornspyrnu KR, Gloria fer illa með Áslaugu Dóru, keyrir inn á teiginn og lætur vaða sirka frá vítateigslínunni og Kelsey átti ekki breik í þennan bolta! Frábært mark.
Lítill kraftur í skotinu og boltinn fer rétt framhjá.
Alli Murphy brýtur á Betsy Doon Hassett rétt fyrir utan vítateig.
Smá munur á stemmaranum. @selfossfotbolti að owna stúkuna, barnafjöldann og peppið. Miðjan með vottorð? #FotboltiNet pic.twitter.com/fTnRmoKAqT
— Maggi Peran (@maggiperan) August 17, 2019
Það vill enginn gera mistök í svona leik, hvað þá fyrstu mistökin!
Kelsey kemur að lokum út og grípur boltann. Frábær fyrirgjöf.
Leikurinn er kominn af stað og það eru Selfyssingar sem að byrja með boltann og sækja í átt að Laugardalslaug. Góða skemmtun kæru lesendur!
Þetta fer að bresta á!
Bæði lið að sjálsögðu í sínum aðalbúðingum í dag. Selfyssingar vínrauðir en stelpurnar úr Vesturbænum eru svartar og hvítar.
Leikmenn ganga til búningsherbergja áður en að alvaran hefst. Stuðningsmenn halda áfram að streyma að og enn eru það Selfyssingar sem eru í miklum meirihluta í stúkunni.
KR hefur leikið tíu sinnum til úrslita og hafa fjórum sinnum lyft titlinum. Kemur fimmti titill KR í dag eða fara Selfyssingar í sögubækurnar?
Selfossstúlkum vel fagnað af sínum stuðningsmönnum þegar að þær komu út á gras.
Bergrós Ásgeirsdóttir er óvænt mætt í byrjunarlið Selfoss en hún var haldin til Bandaríkjanna þar sem að hún stundar nám. Það er því ljóst að henni hefur verið flogið heim til þess eins að spila þennan úrslitaleik.
Hjá KR er Guðmunda Brynja í byrjunarliðinu en hún spilar hér á móti sínu gamla félagi. Betsy Don Hassett er á sínum stað en hún hefur verið einn besti leikmaður KR-liðsins í sumar.
Egill, Gunnar og Kristján dæmdu leik Ægis og KÁ í Þorlákshöfn í 4. deild karla á fimmtudag þar sem þeir stilltu saman strengina fyrir leik dagsins.
Það var þeirra ósk að fá leik saman í aðdraganda úrslitaleiksins til að gera sig klára fyrir verkefnið stóra.
Selfyssingar hafa verið á mikilli siglingu undanfarnar vikur en liðið hefur aðeins tapað einum leik af síðustu níu í öllum keppnum. Eftir þetta frábæra gengi er liðið komið upp í fjórða sæti deildarinnar en liðið á þó leik til góða og gæti komist upp í þriðja sæti með sigri í þeim leik.
KR situr í sjöunda sæti með þrettán stig, níu færri en Selfoss. KR vann flottan sigur á ÍBV í síðustu umferð en á undan þeim leik tapaði liðið tveimur í röð, gegn Val og Fylki. Þrátt fyrir að KR sitji í sjöunda sæti er liðið enn í bullandi fallbaráttu.
Hólmfríður Magnúsdóttir skoraði þá eina mark leiksins á 20. mínútu leiksins og það voru því heimamenn sem fóru með sigur af hólmi í þeim leik.
,,Þetta verður hörkuleikur og stemning á vellinum. Ég verð að viðurkenna að ég held með KR og vona að þær vinni. Ég held samt að Selfoss verði sterkari og vinni 2-1," segir Ásthildur.
,,Selfoss skorar fyrsta markið í fyrri hálfleik, KR jafnar en Fríða skorar sigurmarkið í lokin."
16-liða úrslit
Selfyssingar mættu þá á teppið í Garðabæ en þessi leikur fór alla leið í framlengingu eftir að staðan var 2-2 eftir 90 mínútur. Barbára Sól var hetja gestanna í uppbótartíma þegar hún tryggði liðinu 2-3 sigur.
8-liða úrslit
Selfyssingar fengu þá neðsta lið deildarinnar í heimsókn, HK/Víking. Barbára Sól skoraði tvö mörk fyrir Selfoss og tryggði liðinum leið 2-0 sigur.
Undanúrslit
Grace Rapp skoraði eina mark leiksins þegar liðið mætti Fylki á Wurth-vellinum í Árbænum. Markið kom þegar stundarfjórðungur var eftir af leiknum.
16-liða úrslit
Liðið mætti Keflavík á Nettó-vellinum suður með sjó. Guðmunda Brynja Óladóttir skoraði eina mark leiksins á 82. mínútu og tryggði KR farseðil í næstu umferð.
8-liða úrslit
1. deildarlið Tindastóls mætti þá í Frostaskjólið og aftur dugði það KR að skora bara eitt mark. Betsy Doon Hassett með eina markið í þeim leik á tíundu mínútu.
Undanúrslit
Mörk frá Ásdísi Kareni Halldórsdóttur og Betsy Doon Hasset urðu til þess að KR sló Þór/KA í undanúrslitum. Bæði mörk KR í leiknum komu í síðari hálfleik.
Flautað verður til leiks klukkan 17:00. Við munum færa fréttir héðan eitthvað frameftir kvöldi en hér fylgist ÞÚ með beinni textalýsingu frá leiknum!




Viðtöl, skýrsla, einkunnir og fleira til á .net síðar í kvöld. Takk fyrir mig!