SKÝRSLAN: Bikarmeistarar enn í fallhættu
Hvað réði úrslitum?
Þrautseigja og karakter Fylkismanna.
Voru mun betri í fyrri hálfleik en leiddu bara 1-0 og fengu á sig jöfnunarmark og virtust vera að missa af leiknum. Settu mark úr föstu leikatriði í lokin og sigldu 3 stigum heim.
Voru mun betri í fyrri hálfleik en leiddu bara 1-0 og fengu á sig jöfnunarmark og virtust vera að missa af leiknum. Settu mark úr föstu leikatriði í lokin og sigldu 3 stigum heim.
Bestu leikmenn
1. Helgi Valur Daníelsson
Heldur betur sem hann Helgi líkist rauðvíni, batnar með aldrinum bara. Stjórnaði á miðjunni og setti annað markið sem í raun réð úrslitum.
2. Geoffrey Castillion
Castillion fékk mörg færi til að skora en náði því ekki en hann vann gríðarlega fyrir liðið og lagði boltann á samherja í bestu færum Fylkis. Er í frábæru standi.
Atvikið
Í stöðunni 1-1 er stungið í gegnum Fylkisvörnina á Ágúst Hlynsson sem afgreiddi boltann örugglega í markið en flaggið fór á loft og markið stóð ekki.
Hefði að sjálfsögðu breytt miklu ef Víkingar hefðu komist yfir.
Hefði að sjálfsögðu breytt miklu ef Víkingar hefðu komist yfir.
Hvað þýða úrslitin?
Fylkismenn eru komnir í 5.sæti og fara næst í leik við Stjörnuna sem gæti orðið úrslitaleikur um 4.sætið.
Bikarmeistarar Víkinga geta enn tölfræðilega fallið, sitja 6 stigum frá fallsæti með 2 umferðir eftir.
Bikarmeistarar Víkinga geta enn tölfræðilega fallið, sitja 6 stigum frá fallsæti með 2 umferðir eftir.
Vondur dagur
Bikarmeistarinn og eilífðar-Víkingurinn Halldór átti erfitt í miðjuvörninni. Var stálheppinn að Castillion refsaði honum ekki fyrir stór mistök í fyrri og var ansi duglegur að brjóta í síðari hálfleik en slapp við spjöldin.
Hefur svo sannarlega átt betri daga.
Hefur svo sannarlega átt betri daga.
Dómarinn - 7,5
Ekki mikið af stórum atvikum hjá tríóinu. AD1 var vel staðsettur til að dæma jöfnunarmark Víkinga en það var ósamræmi í spjaldanotkun Einars sem dregur hann niður. Getur betur.



