Fotbolti.net
Sverrir Örn Einarsson
Meistaradeild kvenna
Origo völlurinn Hlíðarenda
Nánast logn, heiðskírt og 5 gráðu frost.
Valur
Valur
4 - 5
Glasgow City FC
Glasgow City FC
0 - 151' Leanne CrichtonMist Edvardsdóttir 79'1 - 11 - 2120' Leanne Crichton (víti)Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir (misnotað víti) 120'120' Mairead Fulton (misnotað víti)Hallbera Guðný Gísladóttir (f) (misnotað víti) 120'120' Joanne Love (misnotað víti)Elín Metta Jensen (víti) 120'2 - 22 - 3120' Lauren WadeHlín Eiríksdóttir (víti) 120'3 - 33 - 4120' Clare Shine (víti)Ásdís Karen Halldórsdóttir (víti) 120'4 - 44 - 5120' Zaneta Wyne (víti)Arna Eiríksdóttir (misnotað víti) 120'
Dómari: Aleksandra Cesen (Slóvenía)
Áhorfendur: Áhorfendabann
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Valskonur rændar Evrópudraumnum

Hvað réði úrslitum?

Ætla nú kannski ekki að ganga svo langt að skella skuldinni á dómara leiksins en hún átti sinn þátt í því þó. Valskonur fengu þó fína sénsa á að klára leikinn seint og í framlengingu sem ekki nýttust. Voru þó rændar vítaspyrnu undir lok framlengingar sem hefði vel getað ráðið úrslitum.

Bestu leikmenn

1. Lillý Rut Hlynsdóttir

Kraftmikil í vörn Vals og stöðvaði ófáar sóknir. Virkilega flottur leikur hjá flottum leikmanni.

2. Elín Metta Jensen

Endalaus dugnaður sem því miður skilaði ekki úrslitum í dag. Getur þó gengið stolt af eigin frammistöðu frá leiknum þótt úrslitin svíði mjög.

Atvikið

117 mínútur á klukkunni og Hlín Eiríksdóttir sloppinn framhjá varnarmanni sem rífur hana niður. Dómari og aðstoðardómari í fínni aðstöðu til að sjá brotið sem sést vel í sjónvarpi en skortir kjarkinn að flauta brot. Rándýrt atvik fyrir Val sem hefði getað klárað leikinn fyrir Val.

Hvað þýða úrslitin?

Valur fer í frí, Glasgow er áfram í Evrópu og verður í pottinum er dregið verður í 32.liða úrslit.

Vondur dagur

Valsliðið á vondan dag í sálarlífinu að leik loknum. Fótboltinn er grimm íþrótt og er þeim vorkunn að hafa fallið úr leik á þann hátt sem raunin er. Treysti þó á það að þær rífi sig upp og mæti grimmar til leiks á næsta tímabili.

Dómarinn - 4

Er langt í frá alveg hlutlaus en hin Slóvenska Aleksandra Cesen átti afleitan dag. Lítið samræmi í dómum hennar og risastór atriði sem hún klikkar á. Auðvitað tapaði hún ekki leiknum fyrir Val en setti klárlega mark sitt á leikinn og þróun hans.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.