Fotbolti.net
@AddiLaufArnar Laufdal Arnarsson
Arnar Laufdal Arnarsson
Pepsi Max-deild karla
Kaplakrikavöllur
Grasið geggjað, sólin skín en það er hvasst
FH
FH
1 - 1
Valur
Valur
22' Haukur Páll SigurðssonÁgúst Eðvald Hlynsson 38'1 - 01 - 170' Sigurður Egill Lárusson
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: Drama í Hafnarfirði

Hvað réði úrslitum?

Markið sem Sigurður Egill skorar þegar 20 mínútur eru eftir af leiknum, Valur komu miklu sterkari inn í seinni hálfleik eftir slaka frammistöðu í þeim fyrri, Valsarar þorðu mun meira í seinni hálfleik og úr því kom jöfnunarmarkið sem þeir leituðust eftir.

Bestu leikmenn

1. Sigurður Egill Lárusson

Leikur tveggja hálfleika, Sigurður Egill mjög flottur í seinni hálfleik, var að taka mikið til sín í leiknum, hljóp mikið og skoraði þetta mikilvæga mark.

2. Jónatan Ingi Jónsson

Eins og ég kom inn á, leikur tveggja hálfleika. Jónatan var lang besti leikmaður FH í fyrri hálfleik og var þeirra hættulegasti maður í seinni hálfleik einnig, mjög sprækur í kvöld.

Atvikið

Jöfnunarmarkið hjá Sigga Lár sem Völsurum svo nauðsynlega vantaði eftir flotta frammistöðu í seinni hálfleik, Valsarar hreinlega refsa FH-ingum fyrir að hafa ekki verið búnir að klára leikinn manni fleiri.

Hvað þýða úrslitin?

Þau einfaldlega þýða það að FH og Valur eru bæði með 4 stig eftir fyrstu tvo leiki tímabilsins. Næsti leikur FH er gegn ÍA heima og Valsarar fá HK í heimsókn.

Vondur dagur

Haukur Páll lætur reka sig útaf og setur leikinn í uppnám fyrir sitt lið, Steven Lennon var einnig gríðarlega slakur í liði FH.

Dómarinn - 7

Helgi Mikael flottur í dag, rétt rautt spjald að mínu mati og var heilt yfir bara flottur í leiknum og mér fannst hann hafa bara ágætis tök á leiknum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.