SKÝRSLAN: Markalaust á Skipaskaga
Hvað réði úrslitum?
Hvorugt lið náði að koma boltanum í markið. Bæði lið sköpuðu sér nóg að færum og hefðu getað stolið sigrinum en boltinn vildi ekki inn.
Bestu leikmenn
1. Dana Joy Scheriff
Dana var hrinalega öflug í dag. Mjög dugleg og skapaði mikið. Átti nokkrar hættulegar skottilraunir í seinni hálfleik, var óheppinn að skora ekki í kvöld.
2. Anna Þóra Hannesdóttir
Það voru margar sem komu til greina en Anna Þóra var mjög góð í dag eins og öll varnalína ÍA. Framan af gekk Haukunum illa að spila sig í gegnum vörn ÍA og svo stóð Anna Þóra vaktina gríðarlega vel undir lok leiks þegar Haukakonur fóru að sækja meira og stoppaði margar sóknir.
Atvikið
Haukar misnota vítaspyrnu á 48. mínútu.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða að Haukar eru í 5. sæti í deildinni með 11 stig og ÍA í 7. sæti með 10 stig. Sem stendur sigla bæði lið lignan sjó í miðri deild.
Vondur dagur
Vienna Behnke klúðrar vítaspyrnu og sást lítið í leiknum.
Dómarinn - 9
Það var allt á hreinu hjá Samir í kvöld.


