Fotbolti.net
Atli Arason
Atli Arason
Pepsi Max-deild karla
HS Orku völlurinn
Þungskýjað en logn
Keflavík
Keflavík
1 - 2
Víkingur R.
Víkingur R.
Sindri Þór Guðmundsson 22'1 - 01 - 158' Nikolaj Andreas Hansen1 - 278' Helgi Guðjónsson
Dómari: Elías Ingi Árnason
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Varamenn Arnars Gunnlaugssonar sóttu þrjú stig í Keflavík

Hvað réði úrslitum?

Það er erfitt að skrifa að Keflavík hafi ekki átt neitt skilið úr þessum leik þar sem heimamönnum gekk vel að eiga við Víkinga framan af leik. Skiptingar Arnars Gunnlaugssonar breyttu hins vegar leiknum gestunum í hag þar sem sprækir varamenn keyrðu yfir þreytta Keflvíkinga.

Bestu leikmenn

1. Kwame Quee

Innkoma Kwame breytti leiknum. Lagði upp eitt mark, nálægt því að leggja upp annað og hefði átt að skora eitt þegar hann var einn fyrir opnu marki undir lok leiks. Kwame var alltaf hættulegur þessar rúmu 30 mínútur sem hann spilaði.

2. Nikolaj Hansen

Mark og stoðsending í 1-2 sigri, Niko heldur áfram að vera aðalsmerki Víkinga.

Atvikið

Keflavík átti nánast öll hættulegu færi leiksins í fyrri hálfleik og voru sára nálægt því að bæta við snemma í seinni hálfleik. Þá var Arnari Gunnlaugs nóg boðið og gerði sóknarsinnaða skiptingu á 56. mínútu. Inn á völlinn kom Kwame Quee og hann breytti leiknum fyrir gestina á innan við tveimur mínútum þegar hann lék listir sínar á hægri vængnum og lagði upp mark fyrir Nikolaj Hansen. Eftir það litu Víkingar ekki um öxl og kláruðu að lokum leikinn.

Hvað þýða úrslitin?

Víkingar eru komnir upp í annað sætið eftir sigurinn, aðeins einu stigi á eftir Val sem situr á toppnum. Keflavík er áfram í níunda sæti eftir tapið, þremur stigum frá fallsvæðinu.

Vondur dagur

Sindri Kristinn átti mjög margar flottar markvörslur í kvöld og því nánast ósanngjarnt að setja þetta á hann. Sindri hefði samt átt að gera betur þegar Helgi Guðjóns skorar sigurmarkið með því að troða boltanum fram hjá Sindra á nærstönginni.

Dómarinn - 8

Elías Ingi átti fínan leik í kvöld og lítið við hann að sakast.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.