Fotbolti.net
Eyþór Daði Kjartansson
Lengjudeild karla
Hásteinsvöllur
ÍBV
ÍBV
2 - 0
Afturelding
Afturelding
8' Oskar WasilewskiBreki Ómarsson 23'1 - 0Seku Conneh 90'2 - 0
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Myndir: Raggi Óla

SKÝRSLAN: ÍBV unnu Þjóðhátíðarleikinn á móti Aftureldingu.

Hvað réði úrslitum?

Það hjálpaði ÍBV að vera manni fleiri í 82 mínútur en þeir voru bara betri í dag. Ekki mikið flóknara en það.

Bestu leikmenn

1. Breki Ómarsson

Breki hrikalega góður, skorar mjög mikilvægt mark og fiskar Oskar útaf með rautt spjald. Var sífellt ógnandi og Birgir Baldvinsson átti í miklum erfiðleikum með hann.

2. Eiður Aron Sigurbjörnsson

Mjög góður í dag eins og alltaf, var nálægt því að skora í tvígang og var bara hrikalega góður. Tapaði ekki skallabolta í dag held ég.

Atvikið

Rauða spjaldið. Síðan komu 2 15 ára strákar inn á hjá ÍBV og annar sem var ónotaður varamaður. Gaman að sjá það.

Hvað þýða úrslitin?

ÍBV styrkir stöðu sína í 2. sæti deildarinnar. En Afturelding eru enn í 9. sæti deildarinnar og gætu farið að sogast í botnbaráttu.

Vondur dagur

Oskar Wasilewski átti rosalega vondan dag. Rekinn útaf eftir 8 mínútur með ansi heimskulegu broti. Skemmdi leikinn fyrir gestina.

Dómarinn - 4

Gerði vel í að gefa Oskari rauða spjaldið en það voru alveg margir skrýtnir dómar. Allt í læ, ekki gott.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.