Fotbolti.net
Arnar Laufdal Arnarsson
Arnar Laufdal Arnarsson
Pepsi Max-deild karla
Kópavogsvöllur
Topp aðstæður
Breiðablik
Breiðablik
4 - 0
Víkingur R.
Víkingur R.
Jason Daði Svanþórsson 34'1 - 0Jason Daði Svanþórsson 38'2 - 0Viktor Örn Margeirsson 48'3 - 0Gísli Eyjólfsson 55'4 - 0
Dómari: Erlendur Eiríksson
Áhorfendur: 658
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leik lokið!
Frábærum fórboltaleik lokið hér á Kópavogsvelli þar sem Blikar valta yfir Víkinga 4-0 og er þetta fimmti 4-0 sigur Blika á heimavelli á tímabilinu!

Þakka fyrir samflylgdina í kvöld, skýrsla og viðtöl að vörmu spori!
91. mín
DODDI VER FRÁBÆRLEGA FRÁ MIKKELSEN

Hornspyrna frá hægri þar sem Thomas á geggjaðan skalla í fjær en Doddi ver þetta meistaralega!
90. mín
+3 frá Ella og co.
89. mín
Mikkelsen finnur Sölva Snæ einan inn fyrir, Sölvi reynir fast skot með hægri í fjær en boltinn fer rétt framhjá markinu!!
Víkingur R.
87. mín
Gult spjald

Arnar Bergmann Gunnlaugsson

Arnar nælir sér í gult
84. mín
Adam Ægir í alvöru færi!!

Pablo með geggjaða fyrirgjöf frá vinstri inn á teig þar sem Adam fær galopið skallafæri en hittir boltann ekki nógu vel og þetta endar í markspyrnu..
83. mín
Langur bolti inn fyrir, Sölvi og Doddi fara í kapphlaup um boltann og Doddi vinnur það kapphlaup og dúndrar boltanum í innkast!
Víkingur R.
81. mín
InnHalldór Smári Sigurðsson
ÚtSölvi Ottesen
78. mín
Breiðablik
75. mín
InnSölvi Snær Guðbjargarson
ÚtGísli Eyjólfsson
Breiðablik
68. mín
InnFinnur Orri Margeirsson
ÚtKristinn Steindórsson
Breiðablik
68. mín
InnÁrni Vilhjálmsson
ÚtJason Daði Svanþórsson
Breiðablik
68. mín
InnThomas Mikkelsen
ÚtDavíð Örn Atlason
Breiðablik
66. mín
Gult spjald

Jason Daði Svanþórsson

Jason Daði nælir sér í Robin Van Persie spjald!

Kemst einn inn fyrir en er flaggaður rangstæður en skorar í mark Víkinga, Erlendi var ekki skemmt og spjaldaði kappann!
65. mín
Víkingar fá hornspyrnu frá hægri!

Luigi tekur hana, spyrnan er góð inn á teig þar sem Sölvi nær að skalla boltann en skallinn fer rétt framhjá!
64. mín

Víkingar virðast ekki hafa nein svör í kvöld
Breiðablik
61. mín
Gult spjald

Oliver Sigurjónsson

Víkingur R.
60. mín
InnAdam Ægir Pálsson
ÚtKwame Quee
Breiðablik
55. mín
MAAAARK!

Gísli Eyjólfsson (stoðsending: Jason Daði Svanþórsson)

Þetta kom eins og þruma úr heiðskýru lofti!!

Damir með langa sendingu inn fyrir og það er eins og Víkingar gleyma sér bara og Jason kemst alveg einn inn fyrir gegn Dodda, Jason á skot sem Doddi ver, Jason fær boltann aftur og skallar í átt að markinu en þar kemur Gísli Eyjólfsson og mjakar boltanum yfir línuna!!

Veisluleikur í gangi!!
Víkingur R.
50. mín
InnHalldór Jón Sigurður Þórðarson
ÚtHelgi Guðjónsson
Víkingur R.
50. mín
InnLogi Tómasson
ÚtJúlíus Magnússon
Breiðablik
48. mín
MAAAARK!

Viktor Örn Margeirsson (stoðsending: Höskuldur Gunnlaugsson)

BLIKAR BYRJA SEINNI AF KRAFTI!!!

Blikar fá hornspyrnu frá hægri, Jason rúllar boltanum á Höskuld sem kemur með fasta fyrirgjöf inn á teig og þar er Viktor Örn sem á frábæran skalla í fjær og Doddi í markinu hreyfist ekki!

Fallegur skalli!!
46. mín

Nær Jason að bæta einu við og skora þrennu?
46. mín
Seinni farinn af stað!
45. mín
Hálfleikur
Blikar fara með 2-0 forystu inn í hálfleikinn! Víkingar hafa svo sannarlega fengið sín færi til þess að skora í þessum leik! Seinni eftir korter
44. mín
Andri Yeoman í færi!!

Gísli með frábæra sendingu inn á teig Víkinga og þar kemst Andri einn gegn Dodda en Doddi lokar vel og ver frá Andra!
Breiðablik
43. mín
InnAndri Rafn Yeoman
ÚtAlexander Helgi Sigurðarson
42. mín
Ja hérna hér þetta lítur ekki vel út en Alexander Helgi virðist vera að ljúka leik, sýndist hann vera halda um mjöðmina á sér
Breiðablik
38. mín
MAAAARK!

Jason Daði Svanþórsson (stoðsending: Höskuldur Gunnlaugsson)

HANN SKORAR BARA AFTUR!!!!!

Aukaspyrna frá 30 metra færi, Höskuldur á fast skot í nærhornið, Doddi ver hann beint út í teiginn og Jason mætir eins og hrægammur fyrstur og skorar auðveldlega í markið þar sem Doddi liggur ennþá í jörðinni!! Spurning hvort Doddi átti að gera betur þar sem þetta var ekki föst spyrna..

The Jason Daði Show í gangi hér á Kópavogsvelli!
38. mín
Víkingur R.
37. mín
Gult spjald

Pablo Oshan Punyed Dubon

Hlaut að koma að því!
Breiðablik
34. mín
MAAAARK!

Jason Daði Svanþórsson

JAAASOOON DAAAÐI!!!

Jason reynir sendingu inn á teig Víkinga, fer af Viktori Örlygi og dettur aftur til Jasons sem leikur auðveldlega framhjá Sölva Ottesen og á geggjað skot niðri í fjær!!

1-0!!
32. mín
Þarna átti Pablo að fá gult spjald, Pablo missir boltann til Davíðs Ingvars, Davíð sendir á næsta mann og Pablo hrindir Davíð í jörðina þegar Davíð ætlar að fara framhjá honum..

Erlendur búinn að setja línuna.
31. mín
Blikar fá hornspyrnu frá vinstri!

Hornspyrnan er fín á fjærsvæðið þar sem Doddi missir af honum en boltinn skoppar í markspyrnu!
24. mín
Föst sending frá hægri inn á teig sem Víkingar hreinsa frá en bara rétt fyrir utan teig þar sem Gísli Eyjólfs fær boltann og ákveður að skjóta! Skotið er fast og rétt yfir markið!!
22. mín
Blikar fá hornspyrnu frá vinstri!

Höskuldur tekur hana, spyrnan er fín inn á miðjan teiginn en Blikar brjóta víst á Dodda í markinu og ekkert verður úr þessu..
18. mín
Þarna verður Kwame að gera betur!!

Kemur langur bolti fram, Davíð Ingvars gerir illa og fer í skallaeinvígi sem hann átti ekki sens í, Víkingar ná að flikka boltanum áfram í svæðið hans Davíðs og þar kemst Kwame einn innfyrir gegn Antoni en skotið er lélegt og Anton ver þetta nokkuð örugglega!!

Víkingar að fá mun betri færi en Blikar meira með boltann..
12. mín
Nú verður allt vitlaust!!

Kwame leikur framhjá Jasoni en slær aftur til hans þegar hann fer framhjá honum og Jason liggur eins og stunginn grís! Blikar alveg öskuillir og vilja spjald!!

Þetta lookaði saklaust úr stúkunni
9. mín
Þarna var færi fyrir Víkinga!!

Erlingur Agnarsson fær boltann úti hægra megin og á fasta sendingu með jörðinni þar sem Kristall er einn við vítapunktinn í afbragðsfæri, Kristall ætlar að taka hann í fyrsta en hann hittir bara ekki boltann..
7. mín
Víkingar fá hornspyrnu frá hægri!

Pablo spyrnir boltanum inn á teig en enginn Víkingur nálægt og Höskuldur skallar frá..
3. mín
Gamli Blikinn, Kwame Quee fer einn á einn gegn Davíð, fer inn á völlinn á vinstri fótinn sinn og á skot en það fer yfir!
2. mín
Davíð Ingvars með fast skot í nærhornið en Doddi er snöggur niður og ver boltann í hornspyrnu!!

Þessi leikur byrjar með látum!
1. mín
DAUÐAFÆRI EFTIR 10 SEKÚNDUR!!!!

Víkingar fara í langan og endar hjá Kristali sem fær boltann rétt fyrir utan teig, fer svo af varnarmanni og beint til Helga G sem er einn gegn Antoni en skýtur yfir!!
1. mín
Leikur hafinn
Leikurinn er farinn af stað! Þetta verður veisluleikur!
Víkingar byrja með boltann
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin

Blikar gera tvær breytingar frá sigrinum gegn Austria Wien en Jason Daði og Davíð Örn koma inn í stað Árna Vill og Viktors Karls.

Víkingar gera þrjár breytingar frá sigrinum gegn Stjörnunni en Erlingur Agnarsson, Helgi Guðjóns og Kwame Quee koma inn í stað Loga T, Karl Friðleifs og Nikolaj Hansen.

Hansen, sem er markahæstur í deildinni, tekur út leikbann sem og Viktor Karl Einarsson.

Karl Friðleifur er ólöglegur í þessum leik þar sem hann er á láni frá Blikum.
Fyrir leik
Hvernig munu þjálfararnir stilla upp í kvöld?

Hvernig mun Arnar Gunnlaugs stilla sínu liði upp í fjarveru Nikolaj? Mun hann setja Helga Guðjóns inn og spila alveg eins fótbolta eða mun Arnar vera djarfur og prófa einhvað gjörsamlega nýtt?

Hvernig mun Óskar Hrafn stilla sínu liði upp? Mun Óskar nota breiða hópinn sem hann hefur og gera margar breytingar út af leiknum gegn Aberdeen á fimmtudag eða mun Óskar stilla nánast sínu sterkasta liði til þess að gera alvöru atlögu að þeim stóra, Íslandsmeistaratitlinum.
Fyrir leik
Mikilvægir leikmenn í banni

Markahæsti leikmaður Pepsi-Max Deildarinnar, Nikolaj Hansen er í banni í kvöld og það má búast við því að Helgi Guðjónsson komi inn í liðið í stað Niko! Ekki nema að Arnar fari í sinn innri Pep Guardiola og notar jafnvel Kristal Inga sem einhverskonar "Falska Níu" en það verður bara að koma í ljós..

Viktor Karl Einarsson sem hefur verið með betri leikmönnum Blika í sumar er einnig í banni og það verður áhugavert að sjá hvernig Blikar leysa það!
Fyrir leik
Evrópuþynnka vol. 2?

Eftir að Breiðablik náðu í frábær úrslit gegn Austria Wien í fyrri leik liðanna þegar liðin gerðu 1-1 jafntefli bjuggust menn kannski við því að Blikar myndu vinna Keflavík nokkuð örugglega í næsta leik. Svo reyndist ekki en Breiðablik tapaði 2-0 gegn Keflavík í annað skipti á tímabilinu en Keflavík slógu Blika líka út úr bikarnum. Það verður áhugavert að sjá hvort Blikarnir byggja ofan á frábæran sigur gegn Austria Wien eða hvort það verður önnur Evrópuþynnka í Blikaliðinu.
Fyrir leik
Arnar og Nikolaj til FH?

Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkinga, gæti tekið við FH eftir tímabilið en Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræddu þetta í útvarpsþættinum Fótbolta.net á X-inu á laugardag.

"Saga sem er orðin ansi hávær núna og ekki í fyrsta sinn sem þessi aðili er orðaður við þetta félag. Ég heyrði það frá góðum manni þegar ég mætti í Kópavoginn. Aðalsagan er að FH ætlar að fá Arnar Gunnlaugs til að taka við liðinu" sagði Elvar Geir.

"Þetta yrði heldur betur áhugavert því þetta yrðu dýrustu vistaskipti í sögu íslenska fótboltans. Arnar Gunnlaugs er á samningi og engin klásúla til að fara. Nikolaj Hansen er svo nýbúinn að semja til 2023," bætti Tómas Þór við.
Fyrir leik
Fyrri leikur liðanna

Fyrri leikur liðanna var einstefna frá A-Ö þegar Víkingar völtuðu yfir Breiðablik 3-0 þar sem Blikar spiluðu líklega sinn lélegasta leik það sem af er tímabils.

Pablo Punyed kom Víkingum yfir snemma leiks og var staðan 1-0 fram á síðustu mínútur leiksins en þá skoruðu Júlíus Magnússon og Kwame Quee með snöggu millibili og niðurstaðan öruggur 3-0 sigur Víkinga.
Fyrir leik
Dömur og herrar verið hjartanlega velkomin að viðtækjunum í þráðbeina textalýsingu frá Kópavogsvelli þar sem sannkallaður stórleikur fer fram þegar sjóðheitir Evrópublikar fá Víkinga úr Reykjavík í heimsókn!
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.