SKÝRSLAN: Þrautseigja Þróttara dugði fyrir stigi á Selfossi
Hvað réði úrslitum?
Þróttarar virtust í betra formi í dag og jöfnuðu tvisvar þegar vel var liðið á hvorn hálfleik.
Bestu leikmenn
1. Brenna Lovera
Tvö glæsileg mörk hjá Brennu í dag auk þess sem hún átti nokkrar tilraunir í viðbót og skapaði færi fyrir samherja sína. Einn besti leikmaður deildarinnar þegar hún er í formi dagsins.
2. Katherine Amanda Cousins
Skapaði alls konar usla í vörn Selfyssinga og oft eins og boltinn væri límdur við tærnar á henni.
Atvikið
Jöfnunarmark Þróttara í fyrri hálfleik sem kom eins og köld og blaut tuska í andlit Selfyssinga sem virtust komnar inn í klefa í huganum. Augnabliks einbeitingarleysi.
Hvað þýða úrslitin?
Óbreytta stöðu fyrir bæði lið.
Vondur dagur
Það verður bara að segjast eins og er að það komust allir vel frá leiknum. Ekki hægt að setja vondan dag á neinn í dag þó kannski helst að varnir beggja liða séu ósáttar við að hafa fengið á sig tvö mörk.
Dómarinn - 7
Virkaði óöruggur í mörgum ákvörðunum en hafði þó alltaf stjórn á leiknum. Báðir þjálfarar ósáttitr í leikslok sem er kannski bara til marks um að dómarinn hafi haft leikinn í teskeið.


